Vignir Vatnar Stefánsson átti glimrandi dag í Serbíu í dag og vann báðar sínar skákir. Þessi úrslit opna gluggann á að Vignir nái GM áfanga á mótinu.
Hilmir og Alexander unnu fyrri skák sína en töpuðu þeirri seinni.

Fyrri skák Vignis í dag var gegn gamla brýninu Branko Damljanovic. Vignir náði taktísku skoti í erfiðri stöðu í miðtaflinu sem Branko brást ekki rétt við. Í kjölfarið var baráttan hörð en svo náði Vignir náðarhögginu í lokin.

Í seinni skákinni vann Vignir nokkuð átakalausan sigur. Hann hirti peð í byrjuninni og tilburðir andstæðings hans til að fá mótspil fengu skilaboðin *HAFNAÐ* hjá Vigni.
Hilmir Freyr Heimisson vann fyrri skák sína gegn Zlatko Ilincic en sá er ansi traustur og tapar ekki mörgum skákum.
Hilmir beitti uppskiptaafbrigðinu í Slavanum, svipað og Vignir gerði. Mögulega eitthvað samstarf þarna á ferðinni hjá strákunum. Hilmir vann peð án þess að beita einhverjum töfrabrögðum og vann svo í endatafli.

Í seinni skákinni tapaði Hilmir svo fyrir rússneska ungstirninu Nikolay Averin. Þeir mættust þrisvar í ferðinni og allar skákirnar unnust á hvítt.
Mögulega „dýnamíkaði“ Hilmir yfir sig í þessari skák en skemmtileg var hún!
Alexander Oliver vann fyrri skák sína í dag gegn efnilegum Rússa.

Í seinni skák Alexanders laut hann í dúk gegn kvenna FIDE meistaranum Viswna Vashnawala. Alexander tefldi hvasst til sigurs með Benoni vörn en sú indverska varðist látunum og hafði sigurinn.

Vignir er með rating performance upp á 2587 þannig að hann er alveg við áfanga dyrnar. Hann fær svart í tveim næstu skákum og verður allavega að vinna aðra þeirra.
GM Flokkur Vignis á Chess-Results
IM Flokkur Hilmis og Alexanders á Chess-Results















