Helgarmótinu Kvibergspelen, sem fram fór í Gautaborg, lauk á sunnudaginn. Stór hópur íslenskra skákmanna tók þátt í mótinu, 19 keppendur frá Skákdeild Breiðabliks og 16 frá Skákdeild Fjölnis. Mótið var tvískipt, teflt í flokki skákmanna með yfir 1600 stig og svo í flokki skákmanna með undir 1600 stig. Tefldar voru fjórar atskákir og fjórar kappskákir.
Sigurvegari mótsins var sænskri FIDE-meistairnn Kaan Kucuksari, með 7 vinninga.

Íslendingarnir stóðu sig með mikilli prýði á mótinu. Efstir þeirra í efri flokknum voru Vignir Vatnar Stefánsson og Stephan Briem með 6 vinninga. Stephan hlaut verðlaun í sínum stigaflokki. Matthías Björgvin Kjartansson hlaut 4,5 vinning og fékk einnig verðlaun í sínum stigaflokk. Efstu þrjú sætin í kvennaflokki fóru öll til Íslands. Lisseth Acevedo Mendez, Hrund Hauksdóttir og Tinna Kristín Finnbogadóttir hlutu allar 4,5 vinning og enduði í efstu sætunum.
Efst Íslendinga í Lilla Kvibergspelen voru Arnar Logi Kjartansson með 5 vinninga, Nökkvi Hólm Brynjarsson með 4,5 vinning og Emilía Embla B. Berglindardóttir og Sigrún Tara Sigurðardóttir með 4 vinninga.

Alls hækkuðu íslensku skákmennirnir á mótinu um 658 skákstig. 361 alþjóðleg stig og 297 atskákstig.
Mestri stigahækkun á alþjóðlegum stigum náðu Tómas Möller (+70), Sigurður Páll Guðnýjarson (+62) og Engilbert Viðar Eyþórsson (+54). Mestri stigahækkun á atskákstigum náðu Matthías Björgvin Kjartansson (+50), Birkir Ísak Jóhannsson (+43) og Lizzeth Acevedo Mendez (+27).

Mótið var vel heppnað í alla staði. Vel fór um skákmenn á hótelinu þar sem teflt var á 1. hæð. Aðstæður á skákstað voru heldur ólíkar því sem fólk á að venjast á Íslandi. Teflt var í fjölda herbergja en efstu borðin voru í stærri sal. Efstu 19 borðin voru í beinni útsendingu á netinu. Lilla Kvibergspelen, flokkur þeirra undir 1600 stigum, var svo í öðrum sal.
Lokastaðan í Lilla Kvibergspelen















