Önnur umferð EM taflfélaga fór fram í Mayrhofen í Austurríki í dag. Víkingaklúbburinn vann i dag. Skákfélag Akureyrar gerði gott jafntefli við norska sveit. Taflfélag Reykjavíkur tapaði þar sem Guðmundur Kjartansson og Margeir Pétursson gerðu góð jafntefli. Skákdeild Fjölnis tapaði með minnsta mun. Taflfélag Garðabæjar tapaði í kvennaflokki.

Taflfélag Reykjavíkur tapaði 1-5 fyrir sterkri slóvanskri sveit. Guðmundur Kjartansson og Margeir Pétursson náðu góðum úrslitum gegn afar sterkum indverskum stórmeisturum.


Fjölnir tapaði með minnsta mun gegn svissneskri sveit. Thybo og Dagur Ragnarsson unnu.

Víkingar lögðu írska sveit sveit 4-2 að velli. Jóhann, Bragi og Davíð unnu.


Akureyringar gerðu gott 3-3 jafntefli gegn norskri sveit. Stefán Bergsson og Andri Freyr Björgvinsson unnu.

Taflfélag Garðabæjar sem tekur þátt í kvennaflokki tapaði 1-3 gegn franskri sveit. Guðlaug Þorsteinsdóttir vann.

- Facebook-síða – myndir (Fiona)
- Chess-Results (opinn flokkur)
- Chess-Results (kvennaflokkur)
- Beinar útsendingar (opinn flokkur) – hefjast kl. 12
- Beinar útsendingar (kvennaflokkur) – hefjast kl. 12















