Víkingar að tafli í gær. Mynd: Fiona Steil-Antoni.

Þriðja umferð EM taflfélaga fór fram í Mayrhofen í Austurríki í gær. Víkingaklúbburinn og Skákfélag Akureyrar gerðu jafntefli. Taflfélag Reykjavíkur og Skákdeild Fjölnis töpuðu naumlega.

Fjölnismenn töpuðu 2-4 á móti svissneskri sveit. Víkingar gerðu 3-3 jafntefli á móti móldóvskri sveit. Björn Þorfinnsson og Gunnar Freyr Rúnarsson unnu.

 

TR að tafli í gær. Mynd: FSA

Taflfélag Reykjavíkur tapaði með minnsta mun geng þýskri sveit. Sulypa vann sína skák.

Skákfélag Akureyrar gerði svo jafntefli geng sænskri sveit. Andri Freyr Björgvinsson vann í ótefldri skák.

 

Heimasíða mótsins

 

 

- Auglýsing -