Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er haldinn 10. október ár hvert og hefur Vinaskákfélagið skipulagt þetta skákmót undanfarin 16 ár, og á allra síðustu árum í samvinnu við Taflfélag Reykjavíkur.
Mótið verður haldið, fimmtudaginn, 20. október í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur og hefst klukkan 19:30.
Birnukaffi verður á sínum stað á mótinu!
Tefldar verða 9 umferðir með tímamörkunum 4 mín. + 2 sek.
Glæsileg verðlaun verða á mótinu eins og venjulega og vill Vinaskákfélagið þakka Skruddu bókaforlaginu sérstaklega fyrir þeirra þátt í að styrkja félagið með bókagjöfum.
Eftirfarandi verðlaun eru þessi:
- Sæti: Gull peningur + Bikar og bók.
- Sæti: Silfur peningur + bók.
- Sæti: Brons peningur + bók.
- Sæti: Kvennaverðlaun: Gull peningur + bók.
- Sæti: 60 +: Gull peningur + bók.
- Sæti: U16: Gull peningur + bók.
Skráningarform: Geðheilbrigðismótið 2022
Til að sjá hverjir hafi skráð sig: Sjá skráða skákmenn
Allir velkomnir!!
- Auglýsing -















