Skákdeild KR hélt sitt mánaðarlega barnaskákmót laugardaginn 8. nóvember sl. Þátttakendur voru 62 að þessu sinni. Veitingar fyrir mótið voru hefðbundnar. Skráning á mótsstað gekk hratt fyrir sig og mótið byrjaði rétt rúmlega kl. 13 og var búið með verðlaunaafhendingu þremur tímum síðar og hefur ekki áður gengið jafn hratt fyrir sig.
Keppt var tveimur flokkum 1.– 3. bekk og 4-9. bekk. Eins og á hinum mótunum sem haldin hafa verið í haust þá var eldri flokkurinn fjölmennari með 34 keppendum meðan 28 voru í yngri flokki. Munurinn þarna á milli virðist fara minkandi og kæmi ekki á óvart ef sá yngir færi framúr hvað fjölda varðar eftir áramót. Það hefur verið stígandi í taflmennskunni á mótunum og ljóst að margir þátttakendur eru í framför.

Í eldri flokki voru Emilía Sigurðardótttir og Anh Hai Tran efst og jöfn með 6 vinninga. Þau tefldu ekki innbyrðis. Emilía tapaði í annarri umferð gegn Eiði Jökulssyni en Anh Hai Tran fór taplaus í gegnum mótið og gerði tvö jafntefli við Þorvald Orra og Emil. Grípa varð þá til stigútreiknings og hafði Emilía þá sigur á hálfu stig. Þriðji var svo Emil Finnsson Fenger með 5,5v.

Í yngri flokki lagði Helgi Fannar Óðinsson alla andstæðinga sína að velli og fékk 7 vinninga í jafn mörgum skákum. Helgi Fannar er búinn að vera í verðlaunasæti á öllum mótunum í haust en landaði núna sínum fyrsta sigri. Í öðru sæti var Sævar Svan Valdimarsson með 6v. Þriðja var svo Emilía Klara Tómasdótttir með 5v. og fleiri oddastig en Tómas Máni Sakalauskas og Jón Fenrir Ragnarsson sem einnig fengu 5v.
Skákdeild KR þakkar keppendum fyrir þátttökuna og öllum þeim aðstoðuðu við mótið fyrir þeirra framlag. Ekki verða fleiri barnaskákmót hjá skákdeild KR á þessu ári en reikna má með að þráðurinn verði tekinn upp að nýju í janúar á komandi ári. Nánari upplýsingar um öll úrslit eru hér fyrir neðan:
Barnaskákmót KR nóvember 2025 – yngri flokkur
Barnaskákmót KR nóvember 2025 – eldri flokkur
![]()
![]()
![]()
![]()














