Seinna kvöld Skákþings Garðabæjar fór fram í gærkvöldi með 5 umferðum.
Dagur Ragnarsson kláraði fyrra kvöldið með 4 vinninga í 4 skákum. Hann hikstaði aðeins með tveim jafnteflum í 5. og 6. umferð gegn Gauta Páli og Birni Þorfinnssyni en kláraði svo mótið með sigri í síðustu 3 skákunum og sigldi mótinu í höfn með 8 vinninga í 9 skákum.
Jafnir í 2. – 4. sæti með 6,5 vinninga voru Arnar Milutin Heiðarsson, Jóhann Ingvason og Björn Þorfinnsson
Björn Þorfinnsson var efstur íbúa Garðabæjar og hlýtur því titilinn skákmeistari Garðabæjar. Lenka Ptáčníková var hæst félagsmanna í Taflfélagi Garðabæjar og hlýtur því titilinn skákmeistari Taflfélags Garðabæjar. Allt stefndi í aukakeppni milli nokkurra TG-inga þegar Lenka virtist vera í steindauðu endatafli með hrókum og mislitum biskupum gegn Páli Sigurðssyni, en Lenka lét Pál þjást í líklega vel á annað hundrað leiki áður en formaðurinn missti þráðinn.
Verðlaunaafhending verður n.k. mánudag á Hraðskákmóti og afmælishátíð Taflfélags Garðabæjar. Skráning hér.
Ýmis verðlaun voru veitt í mótinu en hver keppandi gat aðeins unnið ein verðlaun.
- sæti Dagur Ragnarsson 50.000 kr.
- sæti Arnar Milutin Heiðarsson 22.500 kr.
- sæti Jóhann Ingvason 17.500 kr.
- Skákmeistari Garðabæjar: Björn Þorfinnsson 15.000 kr.
- Efsta skákkona: Lenka Ptáčníková: 15.000 kr.
- Efsti TG-ingur: Jóhann Ragnarsson: 15.000 kr.
- A flokkur: Þorsteinn Þorsteinsson: 15.000 kr.
- B flokkur: Ólafur Örn Ólafsson: 15.000 kr.
Skákstjóri var Jan Olav Fivelstad.














