Chess After Dark, í góðu samstarfi með Barion, heldur skákmót mánudagskvöldið  24. október klukkan 19:30.

Tefldar verða 9. umferðir með tímamörkunum 3+2. Mótið er reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.

Barion er hverfisstaður í Mosfellsbæ.
Staðsetning: Þverholt, 270 Mosfellsbær.

Frítt er inn á mótið.

Verðlaun eru ekki af verri endanum á mótinu!

  1. 50.000 kr

  2. 30.000 kr

  3. 20.000 kr

Aukaverðlaun eru eftirtalin:

U2000: 10.000 kr gjafabréf á Barion

U1600: 10.000 kr gjafabréf á Barion

Aðalmótshaldari er Birkir Karl Sigurðsson (birkirkarl@gmail.com)

Skráningu lýkur 12.00 að hádegi 24.október.

- Auglýsing -