Menningarfélagið Miðbæjarskák, í góðu samstarfi með Snooker og Pool Lágmúla, heldur skákmót sunnudaginn 6. nóvember næstkomandi klukkan 13: Þunnudagsmót! Tefldar verða 9. umferðir með tímamörkunum 3+2. Mótið er reiknað til hraðskákstiga. Gera má ráð fyrir að mótshaldið standi til ca. 15:30. Snooker og Pool er til húsa í Lágmúla 5, Reykjavík.

Þátttökugjöld: 1000 krónur. Þetta gildir fyrir alla þátttakendur. 

Veitt verða verðlaun fyrir fyrsta, annað og þriðja sæti. Verðlaunasjóður verður upp á allavega 30.000 krónur. 

Snooker og Pool bjóða upp á afslætti á veitingum og köldum á meðan mótinu stendur. 

Skráning í mótið fer í gegnum skráningarform, en skráning miðar við 30 manns. Mótshaldarar mæla með að keppendur mæti tímanlega til að staðfesta skráningu á skákstað. 

Þetta er annað sinn sem Miðbæjarskák heldur mót með Snooker og Pool. Fyrsta mótið fór fram 22. maí síðastliðinn. Hægt er að sjá úrslit mótsins á chess-results

Skráningarform 

Þegar skráðir keppendur

- Auglýsing -