Jóhann Hjartarson tefldi á fyrsta borði með Víkingaklúbbnum í gær. Mynd: Halla

Víkingaklúbburinn er í afar vænlegum málum á Atskákkeppni taflfélaga þegar fimm umferðum af níu er lokið.

Sveitin hefur 24½ vinning af 30 mögulegum. Þriggja vinninga forskot á Skákdeild Breiðabliks sem er í öðru sæti og virðist eina sveitin sem gæti veitt Víkingum einhverja keppni.

Mikil barátta er um þriðja sætið en í því sæti nú eru TR, TV og Skákgengið með 17 vinninga.

Mótinu verður framhaldið í kvöld með umferðum 6-9.

Staðan á Chess-Results

- Auglýsing -