Atskákmót hjá TR í kvöld. Tefldar eru fimm skákir og tímamörkin eru 10 mínútur á skákina að viðbættum 5 sekúndum á hvern leik. Teflt er í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12 og taflmennskan hefst stundvíslega klukkan 19:30. Það þarf ekki að skrá sig fyrirfram, nóg að mæta á staðinn. Umsjón með mótunum hafa þeir Eiríkur K. Björnsson og Gauti Páll Jónsson. Þátttökugjald er 500kr. en frítt er fyrir 17 ára og yngri.

Veitt eru verðlaun, 3000 króna inneign í Skákbúðina, fyrir sigurvegara mótsins, og fyrir bestan árangur miðað við eigin stig (rating performance).

———

Jósef Omarsson, fæddur 2011, gerði sér lítið fyrir og vann Þriðjudagsmótið þann 6. desember síðastliðinn. Þetta er líklega yngsti sigurvegari Þriðjudagsmóts síðan mótin hófu göngu sína að nýju fyrir þremur árum. Jósef, sem náði að bjarga jafntefli í 1. umferð með patti, tryggði sér sigur með að vinna næstu andstæðinga sína fjóra, og þeirra á meðal Kristófer Orra Guðmundsson í lokaumferðinni sem hafði þá fullt hús. Kristófer, Hjálmar Sigurvaldason og Grímur Daníelsson voru næstir með fjóra vinninga af fimm. Árangursverðalunin hlaut Sigurbjörn Hermannsson með 1129 stig en hann var með árangur upp á 1382 stig. 24 skákmenn mættu til leiks að þessu sinni.

Úrslit og stöðu mótsins má sjá á chess-results.

Þriðjudagsmótin taka ekkert jólafrí þar sem engir þriðjudagar lenda á heilögum frídögum, en það mun kannski breytast ef frumvarp Pírata um tapaða frídaga verður að veruleika!

Næsta þriðjudagsmót verður því í kvöld, þriðjudaginn 13. desember og leikar hefjast stundvíslega klukkan 19:30. Mótið í kvöld verður sýnt live á lichess, teflt verður á dgt borðunum upp á palli og lifandi skákskýringar á netinu. Nánar um það í kvöld á skak.is!

Dagskrá þriðjudagsmóta fram yfir áramót:

13. desember klukkan 19:30

20. desember klukkan 19:30

27. desember klukkan 19:30

3. janúar klukkan 19:30

… og svo framvegis!

- Auglýsing -