Í dag hófst alþjóðlegt mót í Przeworsk í Póllandi þar sem stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2521) er meðal keppenda. Hann vann pólska alþjóðlega meistarann Jonasz Baum (2427) í fyrstu umferð.
Þátt taka 10 skákmenn, og tefla allir við alla. Þar af eru þrír stórmeistarar. Hannes er þriðji í stigaröð keppenda. Meðalstigin eru 2451 skákstig.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 13)
———–
FIDE-meistarinn Sigurður Daði Sigfússon (2279) er meðal keppenda á EM öldunga sem fram fer í Acqui Terme á Ítalíu. Hann hefur 2½ vinning að loknum fjórum umferðum.
Í flokki Sigurðar Daða (50+) eru 80 keppendur frá 25 löndum. Þar af eru 5 stórmeistarar og 7 alþjóðlegir meistarar. Daði er tíundi í stigaröð keppenda.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 13)
———–
FIDE-meistarinn Þorsteinn Þorsteinsson (2218) tók þótt í móti í Djenovici í Svartfjallalandi sem er nýlokið.
Þorsteinn hlaut 2½ vinning.
Á mótinu tefldu 10 skákmenn, þar af 3 alþjóðlegir meistarar, allir við alla. Þorsteinn var nr. 6 í stigaröð keppenda
———–
Þann 31. maí hefst í Þýskalandi alþjóðlegt mót í Þýskalandi þar Guðmundur Kjartansson (2402), Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2338) og Guðni Stefán Pétursson (2024) eru meðal keppenda.