Rétt eins og í júnímánuði í fyrra 2022 ætlar Skákskóli Íslands að hafa Opið hús fyrir nemendur sína og áhugasöm börn og unglinga í húsnæði skólans að Faxafeni 12.
Aldurstakmörk eru miðuð við 20 ár. Opna húsið stendur hvern virkan dag frá 1. – 30. júní, kl. 13 – 17. Það er frjáls mæting hvenær sem er á þessum tíma. Umsjónar- og ábyrgðarmaður opna hússsins verður Helgi Ólafsson skólastjóri Skákskóla Íslands og núverandi landsliðseinvaldur í opnum flokki. Eins og í fyrra verður Birkir Ísak Jóhannsson umjónarmaðuir Opna hússins og verður með viðveru allan tíman í júní en einnig verður kallað eftir þátttöku þekktra meistara sem munu hafa margvísleg hlutverk.
Opna húsið er ekki síst miðað við þau ungmenni, pilta og stúlkur, sem hyggja á þátttöku á mótum innanlands og utan og má þá nefna alþjóðleg unglingamótum sem fram fara í haust svo EM ungmenna í Rúmeníu, HM barna í Egyptalandi og HM ungmenna 18 ára og yngri á Ítalíu. Miðað er við að þátttakendur séu á alþjóðlegum stigalista FIDE. Undantekningar verða gerðar ef sérstök ástæða þykir til.
Þá er Opna hússið heppilegur staður fyrir “hitting” félaga hvenær sem hentar.
Mæting er frjáls innan tímarammans en auðvitað eru þátttakendur hvattir til að mæta sem oftast. Þeir geta tekið méð sér nesti en reglur um umgengi verða áréttaðar þegar opna húsið hefst. Lögð er áhersla á góða framkomu allra þátttakenda.
Meðal þess sem Skákskólinn mun leggja til opna hússins er eftirfarandi:
- Klukkufjöltefli hvern föstudag við þekktan meistara með tímamörkunum 90 30. Skákir verða skrifaðar niður og verðlaun veitt í lok júnímánaðar fyrir bestu frammistöðu þátttakenda.
- Yfirferð efnis frá
- Safnskákir þekktra skákmeistara teknar til meðferðar.
- Bókasafn Skákskólans verður opið þátttakendum, hugbúnaðar o.fl. Þá mun Skákskólinn kaupa inn ný og ferskt efni sérstaklega fyrir Opna húsið.
- Skákmót með styttri umnhugsunartíma.
- Æfingar í þekktum endatöflum, miðtöflum og byrjunum. .
- Kynning á þáttum skáksögunnar, gömul heimsmeistaraeinvígi rifjuð upp svo dæmi sé tekið.
Dagskráin verður nánar tilgreind síðar hvað varðar tímasetningar einstakra liða.
Kostnaði verður haldið í lágmarki og er áætlaður kr. 10 þús fyrir hvern þátttakenda.