Matthías Björgvin og Ingvar Wu eru núverandi Íslandsmeistarar í skólaskák.

Úrslit Landsmótsins í skólaskák hefjast í dag kl. 11:00. Mótið fer fram við glæsilegar aðstæður í húsnæði Siglingaklúbbs Kópavogs að Naustavör 14.

Úrslitin verða tefld í tólf manna flokkum þar sem allir tefla við alla. Keppendum verður boðið upp á holla orku (ávexti o.s.frv.) meðan á mótinu stendur. 

Teflt er í þremur flokkum, 1.-4. bekkur, 5.-7. bekkur og 8.-10. bekkur.

Umhugsunartími: 15 mínútur á mann með 5 sekúndna viðbótartíma á leik. Mótin verða reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga.

Dagskrá:

  • Laugardagurinn, 10. júní, Kl. 11:00 – u.þ.b. 17:00
  • Sunnudagurinn, 11. júní, Kl. 11:00 – u.þ.b. 16:30

Mæting á laugardegi 10:40 – klukkur fara í gang 11:00.

Verði keppendur jafnir í efsta sæti tefla þeir einvígi um titilinn með hraðskáktímamörkum. 5 03. Einvígi fer fram að lokinni verðlaunaafhendingu. Um önnur sæti gilda mótsstig.

Verðlaun í elsta flokki:

  1.     Ferðastyrkur á mót erlendis að verðmæti 80.000 kr.
  2.     Ferðastyrkur á mót erlendis að verðmæti 50.000 kr.
  3.     Inneign hjá Skákbúðinni að verðmæti 20.000 kr.

Efsti keppandi af landsbyggð: Inneign hjá Skákbúðinni að verðmæti 20.000 kr.

Verðlaun í yngri flokkum

  1.     Ferðastyrkur á mót erlendis að verðmæti 50.000 kr.
  2.     Ferðastyrkur á mót erlendis að verðmæti 30.000 kr.
  3.     Inneign hjá Skákbúðinni að verðmæti 20.000 kr.

Efsti keppandi af landsbyggð: Inneign hjá Skákbúðinni að verðmæti 20.000 kr.

Keppendur af landsbyggðinni fá ferðastyrk gegn framvísun kvittana.

  • Flug fyrir þá sem það þurfa
  • Gisting ef nauðsynleg
  • Endurgreiddur bensínkostnaður fyrir keppendur utan höfuðborgarsvæðisins sem koma keyrandi. Miðað er við 25 kr. á kílómeter 

Skákstjóri er Daði Ómarsson.

Nánar um keppendur, pörun og úrslit á chess-results:

Sýnt er beint frá tveimur skákum í flokki 8.-10. bekkjar og efstu borðunum í yngri flokkunum.

Beinar útsendingar

Skákstjóri mótsins er Daði Ómarsson

- Auglýsing -