Aðalfundur Skáksambands Íslands fór fram laugardaginn 10. júní í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur. Fundurinn var ákaflega vel sóttur en 60 fulltrúar frá 21 aðildarfélagi sátu fundinn.

Gunnar Björnsson var endurkjörinn forseti SÍ. Hann hlaut 41 atkvæði en Kristján Örn Elíasson hlaut 16. Auðir seðlar voru þrír.

Með Gunnari í stjórn voru sjálfkjörin: Agnar Tómas Möller, Auðbergur Magnússon, Harpa Ingólfsdóttir, Helgi Brynjarsson, Jóhanna Björg Jóhannsdóttir og Stefán Steingrímur Bergsson.

Í varastjórn voru kjörin: Arnar Milutin Heiðarsson, Daði Ómarsson, Lisseth Acevedo Méndez og Tinna Kristín Finnbogadóttir.

Ályktun um tillögu til stjórnar SÍ frá Jóhanni Hjartarsyni, varðandi tímamörk á Íslandsmóti Skákfélaga, var samþykkt með meirihluta atkvæða. Tillagan varðaði 15 mínútna viðbótartíma eftir 40 leiki og skapaðist lífleg umræða um hana.

Skákdeild Dímons var samþykkt sem nýtt aðildarfélag að Skáksambandi Íslands með lófaklappi.

Í skýrslu forseta kom fram að starfsárið 2022-2023 hafi verið mjög viðburðarríkt. Afmælishátíð einvígis aldarinnar, stórmeistaratitill Vignis Vatnars og eftirtektarverður árangur ungra skákmanna eru meðal þeirra atriða sem standa upp úr á árinu. Forseti þakkaði fráfarandi stjórnarmeðlimum góð störf en þeir Kristófer Gautason, Þorsteinn Magnússon og Þorsteinn Stefánsson víkja úr aðalstjórn og Andri Freyr Björgvinsson úr varastjórn.

Nánar má lesa um starfsárið í ársskýrslu Skáksambandsins.

Fundargerð aðalfundar verður birt þegar hún liggur fyrir.

- Auglýsing -