Fimmta umferð Teplice Open fór fram í gær í Tékklandi. Í gær kom 1½ vinningur í hús. Tvíburanir, Bárður Örn (2179) og Björn Hólm Birkissynir (2121) og Hilmir Freyr Heimisson (2413) gerðu jafntefli en aðrar skákir töpuðust. Tvíburarnir með jafntefli gegn stigahærri andstæðingum.
Bárður gerði jafntefli við tyrkneska FIDE-meistarann Huseyin Can Agdelen (2391) og Björn Hólm við alþjóðlega meistarann Dietmar Kolbus (2283) frá Mön.
Bárður Örn hefur 3½ vinning, Hilmir Freyr og Björn Hólm hafa 3 vinninga, Davíð Kolka hefur 2 vinninga og, Mai-bræðurnir, Alexander Oliver og Aron Þór hafa 1½ vinning.
Sjötta umferð af níu fer fram í dag.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsending (hefjast flestar kl. 13)
- Auglýsing -


















