Hilmir Freyr Heimisson er algjörlega „á eldi“ á opna mótinu í Prag og hefur nú 5,5 vinning af 6 eftir enn einn sigurinn. Hannes Hlífar Stefánsson er einnig í góðum gír á Tene og vann í dag og hefur 3,5 vinning af 4, hefur unnið allar tefldar skákir sínar.

Hilmir gjörsamlega yfirspilaði andstæðing sinn í dag, FIDE meistarann Rao Sharan (2248) frá Indlandi. Bjartsýn framrás í miðtaflinu, 22.f4? tryggðu Hilmi stöðuyfirburði og frumkvæði sem hann lét aldrei af hendi.

Hilmir hefur eins og áður sagði 5,5 vinninga 6. Hilmir fær hvítt á indverska stórmeistarann Deep Sengupta (2473) í sjöundu umferðinni. Vonandi verður sá indverski ekki of djúpur!

Tvíburarnir áttu góðan dag.

Bárður Örn Birkisson (2179) er orðinn næst efstur Íslendingana með 4,5 vinning. Hann lagði Salvador Eduardo Serrano (2283) frá Tékklandi í umferð dagsins. Þriðji sigur hans í röð! Bárður mætir indverska alþjóðlega meistaranum Upadhyaya Anwesh (2353) í sjöundu umferðinni.

Aleksandr Domalchuk-Jonasson gerði jafntefli við hollenska alþjóðlega meistarann Gerard Welling (2253) í dag og hefur 4 vinninga.

Davíð Kolka (1959) og Aron Þór Mai (2077) hafa 3,5 vinning eftir jafntefli í sínum viðureignum.

Alexander Oliver Mai (2128) laut í dúk í dag og hefur 3 vinninga eins og Björn Hólm Birkisson (2121) sem gerði jafntefli í sinni skák. Jóhann H. Ragnarsson (1908) laut einnig í dúk og hefur 2 vinninga.

Jóhann Hjartarson (2454) tók yfirsetu í fjórðu umferðinni í Dortmund og hefur 0,5 vinninga eftir umferðirnar fjórar

Hannes Hlífar Stefánsson virðist vera í góðum gír og sáttur við sólina á Tene. Hann lagði indverska alþjóðlega meistararann Bala Chandra Prasad Dhulipalla (2448) með svörtu mönnunum. Hannes hefur unnið allar þrjár tefldar skákir sínar og hefur 3,5 vinning af 4 mögulegum.

Pörun liggur ekki fyrir þegar þetta er skrifað en Hannes ætti að fá stórmeistara í 5. umferðinni.

- Auglýsing -