
Vignir Vatnar Stefánsson hefur hafið leik á alþjóðlega mótinu í České Budějovice í Tékklandi. Jóhann og Hannes nálgast lokametrana í sínum mótum.
Vignir er stigahæsti keppandinn á mótinu og mætti ísraelska kvenstórmeistaranum Ludmila Tsifanskaya (1964). Sú ísraelska veitti Íslandsmeistaranum verðuga mótspyrnu og á tímabili var engan veginn útséð að okkar maður næði að landa vinningnum en það hafðist þó að lokum. Mögulega var úthaldið eitthvað að stríða Ludmilu í lokin, enda fædd 1949!
Með Vigni í för eru fjölmargir Íslendingar sem komu frá mótinu í Prag auk Benedikt Briem sem var í samfloti með Vigni.
David Kolka (1938) var aflakóngur á síðasta móti og hækkaði mest manna þar. Hann fékk erfitt verkefni í dag og tapaði með svörtu gegn stórmeistaranum Petr Velicka (2370).
Tvíburarnir Bárður Örn og Björn Hólm Birkissynir vilja væntanlega gleyma þessari fyrstu umferð. Bárður Örn (2199) gerði jafntefli gegn Tobias Svacina (1849) en Björn Hólm (2137) laut í dúk gegn WCM Karin Novomeska (1794). Alexander Oliver Mai (2137) tapaði líka gegn stigalægri andstæðing, laut í dúk Amarmani Harshit (1791) frá Indlandi. Aron Thor Mai (2037) tapaði líka, gegn Jan Dvorak (1593).

Benedikt Briem (2127) rétti úr kútnum fyrir „íslenska liðið“ og lagði Karel Svejda (1785).
Slæm byrjun hjá okkar mönnum og kennum ferðaþreytu um sem menn vonandi hrista af sér!
Skákir 1. umferðar

Jóhann Hjartarson (2454) vann sína fjórðu skák í röð í Dortmund, allt gegn stigalægri Þjóðverjum. Að þessu sinni gegn Lars Balzer (2033). Jóhann fær fimmta Þjóðverjann í röð á morgun, Timo Leonard (2221).

Hannes Hlífar Stefánsson gerði jafntefli með svörtu gegn Kínverjandi Renjie Huang (2406), fjórði kínverski andstæðingur Hannesar í röð!
Einhvern veginn virðist Hannesar hreinlega fá alla mögulega kínverska andstæðinga sem kunna mannganginn! Í lokaumferðinni mætir Hannes Kínverjanum Tong Xiao (2316). Þetta er ekki grín! Á efstu 25 borðunum eru 7 Kínverjar en samt hefur Hannes í toppbaráttu einhvern veginn fengið 5 Kínverja í röð, í móti á Spáni!
Hannes hefur 6 vinninga af 8 mögulegum og gæti náð skiptu efstu sæti með sigri í lokaumferðinni þar sem hann er enn hálfum vinningi á eftir efstu mönnum.














