Stórmeistarinn Bragi Þorfinnsson og alþjóðlegur meistari kvenna Olga Prudnykova eru efst og jöfn með 4,5 vinning eftir 5 umferðir í Áskorendaflokki Skákþings Íslands. Snilldarleikir, sveiflur og sviptingar voru á boðstólnum eins og venjulega!
Á efsta borði fékk stjarna mótsins hingað til Benedikt Þórisson (1851) erfitt verkefni en hann fékk svörtu mennina gegn stigahæsta keppandanum, stórmeistaranum Braga Þorfinnssyni (2394). Bragi tefldi menntaðan enskan leik með hvítu, líklegast skynsamlegt byrjanaval gegn ungum teóríufræðing!
Bragi fór í dýnamíska peðaframrás á kóngsvæng snemma tafls og líklega var Benedikt strax kominn með erfiða ákvöðrun eftir 13.h4!?
Hvítur gælir við að leika h5 og svo jafnvel h6 í kjölfarið. Benedikt líklega strax kominn með erfiða ákvörðun og hann valdi 13…Rf4 sem tapar peði þar sem hvítur nær að umkringja f4 peðið og vinna það.
Peðið nægði stórmeistaranum. Bragi bætti stöðu sína jafnt og þétt og nýtti umframpeðið. Benedikt sýndi fína hörku í vörninni og var við það að klóra sig aftur inn í skákina þegar hann gaf aftur eftir og Bragi kláraði dæmið.

Á öðru borði mættust Olga Prudnykova (2268) með hvítt og Benedikt Briem(2207) með svart. Benedikt tefldi franska vörn og Olga valdi afbrigði með Be3 sem er kennt við Kupreichik ef ritstjórnin man rétt. Fáir hafa teflt þetta hér á landi með einni undantekningu þó en múrarinn og Skagamaðurinn Einar K. Einarsson hefur teflt þetta afbrigði á hvítt í gegnum tíðina.
Olga er nýjasta landsliðskona Íslands en hún flutti nýverið hingað búferlum frá Úkraínu. Áskorendaflokkur er í raun fyrsta mótið sem hún teflir í hér á landi og taflmennskan lofar svo sannarlega góðu!
Olga fékk rjómastöðu og hér lét hún til skarar skríða. 20.Rg5 setur á h7 peðið og Benedikt valdi að verjast með 20…h6 þá kom menntað riddarahopp 21.Rh7! Hfc8 og 22.Rf6+! svarta staðan er algjörlega við þolmörk og eftir 22…Kh8 23.Rg4 Dd8 24.Rxh6! ætti hvítur að standa til vinnings.
Það hefur hinsvegar margsannað sig að skák er leikur tækifæra og Benedikt fékk tækifærið sitt eftir nokkra ónákvæma leiki hjá Olgu.
Hér lék Benedikt 32…Hb8 sem gefur hvítum góða sénsa í endatafli. 32…Ha1! virðist hinsvegar þvinga jafntefli. Hvítur á nokkra möguleika. 33.Hxa1 Dxa1 34.Kh2 De5+ endar í þráskák þar sem svartur fær unnið tafl eftir 35.g3 Bb7!
Hvítur verður því annaðhvort að taka á c8 eða leika drottningunni en í báðum tilvikum kemur …Hxf1+ og svo …Da1+ og svartur nær þráskák.
Þetta reyndist í raun síðasta séns Benedikts því Olga herti tökin eftir þetta og vann aftur góðan sigur í drottningarendatafli. Olga vann einmitt gott drottningarendatafl gegn Arnari Milutin og því að fá góða æfingu í þessum endatöflum!

Á þriðja borði tefldu Mikael Jóhann Karlsson (2127) með hvítt gegn Bárði Erni Birkissyni (2191). Mikael opnaði taflið á 1.Rf3 en við fengum fljótlega slavneska vörn.
Staðan var í jafnvægi en við fengum hálf fyndna stöðu í miðtaflinu.
Eini leikur svarts hér er 26…Hd8 sem Bárður fann auðvitað enda ekkert annað í boði til að stoppa uppkomu nýrrar drottningar.
Endataflið sem kom upp var dautt jafntefli en Mikael gerði stór mistök.
43.Bd4?? gefur svörtum auðunnið kóngsendatafl þrátt fyrir að hann sé í raun peði undir í stöðunni. Afdrifarík mistök sem kostuðu skákina.

Á fjórða borði hafði Jóhanni Ragnarsson (1866) hvítt gegn alþjóðlega meistaranum Davíð Kjartanssyni (2292). Upp kom móttekið drottningarbragð sem Davíð hefur alloft beitt með svörtu.
Jóhann tók mjög afgerandi og afdrifaríka ákvörðun með 13. leik sínum biskup til e3.
Hvítur fórnar hér h2-peðinu með skák og stenst það ekki væntingar tölvuforrita. Davíð tók áskoruninni og drap á h2, 13…Bxh2+ 14.Kh1 Bf4 og þá lagði Jóhann alla spilapeningana á borðið líkt og hann gerði gegn Bárði í 2. umferðinni með 15.Bxe6?
Skák er hinsvegar mannlegur leikur og Davíð valdi „mannlega“ leið með því að koma drottningunni í spilið og gefa eitt peð í viðbót. Tölvuforritin fóru að meta hvítu stöðuna betri, allt þar til Davíð fann sleggju dagsins!
Hér fann Davíð WMD leik eða „Weapon of Mass Destruction“! 21…Dxf5!! er eini leikurinn til að gefa svörtu vinningsstöðu og Davíð fann leikinn. Eftir 22.exf5 kom 22…Bxg2+
og svo 23…Rg4+ og svartur stendur til vinnings.
Reyndar var 23…Re5!!! besti leikurinn í stöðunni en líklega hefði Davíð þá þurft að sætta sig við viðlíka líkamsleit og Niemann varð að sætta sig við í fyrra ef hann hefði fundið þann leik!
Eftirleikurinn varð auðveldur og mikilvægur sigur í hús hjá Davíð.

Adam Omarsson (1862) hafði hvítt gegn Birni Hólm Birkissyni (2097). Eftir gott jafntefli í síðustu umferð lét Adam aðeins taka sig í bólinu í byrjuninni. Björn beitti …Bd6 línunni sem margir eru farnir að tefla vegna meðmæla Vignis Vatnars á VignirVatnar.is. Einn pytturinn sem hvítur getur fallið í er einmitt í þessari stöðu:
Hér strandar hinn eðlilegi 11.0-0?? á biskupsfórninni 11…Bxh2! svartur stendur nánast til vinnings enda gríðarlega stórt peð fallið sem veikir kóngsstöðu hvíts alltaf.
Björn vann góðan sigur og tiltölulega auðveldan.
Jóhann Ingvason (2087) hafði hvítt gegn Kristjáni Erni Elíassyni (1758). Líklegast hafa fáir teflt jafn margar skákir innbyrðis en þessir tveir tefldu hraðskákeinvígi heilu og hálfu dagana þegar best lét. Þeir þekkja því vel inn á stíl hvors annars, vægast sagt! Skák þeirra félaga varð mikil baráttuskák en það skildi ekkert á milli fyrr en undir lok tímamarkanna í 40. leik þegar Kristján fór að gefa eftir.
Gauti Páll nagar sig vafalítið í handarbökin að hafa ekki klárað skák sína gegn Ingvari Wu á sjöunda borði. Ingvar virkaði ráðvilltur í byrjuninni og lék biskup sínum fram og til baka sem og riddara sínum. Þrátt fyrir plan-leysi svarts náði hvítur ekki að finna leið til að brjótast í gegn og Ingvar vann sig inn í skákina. Upp kom jöfn stað en Gauti hélt vinningsmöguleikum gangandi með menntaðri skiptamunsfórn. Fórnin hefði mögulega gefið ávöxt í 50. leik.
Hér var Gauti of varkár með 50.Be4? og skákin fjaraði út. 50.hxg6 hxg6 51.Bf7 gefur hvítum vinningsstöðu.


Úrslit:

Hægt er að nálgast skákir 5. umferðar inni á lichess hér. Einnig hægt að hala niður 5. umferð á PGN hér. Beinar útsendingar eru bara á LiveCloud (sjá link að neðan) en skákir eru settar inn á lichess eftirá.
Í 6. umferð sem fer fram á morgun klukkan 18:30 þá mætast Olga og Bragi ótrúlegt en satt EKKI á efsta borði. Olga og Bragi voru bæði búin að hafa hvítt í síðustu tveimur skákum og ef því verður við komið býður svissneska kerfið ekki upp á það að keppandi fái sama litinn þrisvar sinnum í röð, sem var einn af stóru göllunum í gamla góða monrad-kerfinu.
Það kemur því í hlut Bárðs að stýra hvítu gegn Braga og Benedikt Þórisson fær hvítt gegn Olgu. Eftir sem áður eru mikilvægar skákir úti um allt þar sem mótið stefnir í að verða galopið og spennandi.

Teflt verður á hverjum degi næstu daga um tvö sæti í landsliðsflokki að ári. Umferðir um helgar byrja 13:00 en á virkum dögum 18.30. Oddastigaútreikningur* ræður lokaröð sæta.
- Mótið á Chess-Results.
- Beinar útsendingar
- Lichess
- Frétt með praktískum atriðum, verðlaun, oddastig o.fl.
















