Birkir á EM í Rúmeníu

HM barna lauk í dag í Egyptalandi. Ísland átti tvo þátttakendur þar, þá Josef Omarsson sem tefldi í U12 flokknum og Birkir Hallmundarson í U10. Birkir lauk leik með sigri í dag og náði í raun stórbrotnum árangri og besta lokasæti Íslendings á slíku móti í áratugi!

Í flokki Birkis voru 115 keppendur og hóf Birkir leik númer 34 í styrkleikaröðinni samkvæmt stigum. Birkir sýndi heldur betur að hann átti meira inni en það og glæsilegur sigur í lokaumferðinni gegn stigahæsta manni flokksins færði hann upp í 5-8. sætið með 8 vinninga af 11 mögulegum. Sigurvegari flokksins hlaut 9 vinninga og Birkir því aðeins hálfum vinningi frá því að berjast um að komast á pall á heimsmeistaramóti!

Sigurinn í lokaumferðinni var sannfærandi og glæsilegur. Birkir mætti þar tyrneska Kandídatameistaranum (CM) Sarp Sahin sem er með 2146 skákstig sem er ansi hátt fyrir skákmann í U10 flokki.

Birkir hafði hvítt og upp kom svokallaður Semi-Slavi. Tyrkinn varð eilítið ráðvilltur í byrjuninni og endaði með slæma peðastöðu en Birkir skipti upp á drottningum sem minnkaði þann veikleika lítillega en Birkir hélt samt frumkvæði með hvítu mönnunum eftir kaupin.

Eftir kaupin þétti Birkir að Tyrkjanum með hnitmiðaðri taflmennsku. Menn svarts stóðu illa og lokahnykkurinn var flottur.

26.Bxe6! er andstöðulegur leiukr þar sem hvítur sléttir peð svarts eftir 26…fxe6 Birkir hafði hinsvegar séð lengra og 27.Rd7+ kom í kjölfarið.

Svarts kóngsins bíða bara jarðsprengjur. Eftir kóngurinn fer á e8 kemur Rxf6+ og eins og tefldist 27…Kf7 þá kemur 28.Rh6+ og skiptamunur fellur. Sá tyrneski hafði séð nóg og lagði niður vopn sín.

Lokaniðurstaðan eins og áður sagði 8 vinningar af 11 og 5-8. sætið.  Birkir hækkar um 80 elóstig fyrir árangurinn! Voanndi verður vel haldið á spöðunum með þennan dreng því hann er prýddur ýmsum kostum sem einfaldlega er ekki hægt að kenna.

Josef var búinn að vera á góðu skriði í U12 flokknum með 4 vinninga úr síðustu 5 umferðum en varð að lúta í dúk í lokaumferðinni gegn ungum Úzbeka, Javokhir Bozorov (2030). Josef endaði því með 5,5 vinning af 11. Josef lækkar um 40 elóstig á mótniu.

 

- Auglýsing -