Glæsilegt, sterkt og  skemmtilegt boðsmót Arionbanka fór fram síðastliðið miðvikudagskvöld. Sterkir skákmenn, starfsmenn og velunnarar voru mættir til leiks og keppt var í tveimur styrkleikaflokkum, yfir 1800 og undir.

Tveir annálaðir heiðursmenn að tafli

Tefldar voru sjö umferðir og tvær efstu skákir í hvorum flokki á tjaldi þar sem teflt var á sviði í ráðstefnusal.

Eftir harða keppni í sjö umferðum þar sem ýmsir skiptust á forystu fóru fjórir efstu í undanúrslit. í A-flokki varð Hjörvar hlutskarpastur en Dagur og Bragi áttu góða spretti. Bragi gaf eftir í lokin og rétt missti af undanúrslitum.

Í A-flokki tefldu:

Hjörvar Steinn – Vgnir Vatnar
Helgi Ólafsson – Dagur Ragnarsson

Hjörvar þurfti Armageddon skák gegn Vigni og komst í úrslit eftir harða baráttu. Vignir endaði á að hrifsa þriðja sætið en Hjörvar hafði betur gegn Helga í úrslitaskákinni.

Briem-vélin, Kjartan Briem kom sterkur inn í B-flokknum og endaði efstur eftir undanmótið með 6 vinninga af 7 og sýndi glæsilega takta. Jónarnir tveir voru líka sterkir

Í B-flokki tefldu:

Kjartan Briem – Jóhann Óli
Jón Gunnar Jónsson – Björgvin Ívarsson Schram

Jóhann Óli stöðvaði sigurgöngu Kjartans og lagði svo Jón Gunnar í úrslitum. Björgvin hirti svo bronsið.

- Auglýsing -