Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2529) situr nú að tafli á HM öldunga 50+ sem fram fer á Terrasini á Ítalíu. Fjöldi stórmeistara eru mættir til leiks og þeirra fremstur í flokki er Michael Adams (2670). Hannes er númer 2 í stigaröðinni þó fjöldi sterkra gamalla meistara séu mættir til leiks.
Hannes byrjaði á slysalegu tapi í 1. umferð en var með 2 vinning af 3 fyrir umferð dagsins. Hannes mætti Yves Morin (2169) frá Kanada og hafði svart. Hannes fann skemmtilegt gegnumbrot.
39…Bxg2!? var skemmtilegur en 39…Bf3!! með sömu hugmynd var jafnvel enn sterkari! Eftir kaupin 40.Hxg2 Hxg2 41.Hxg2 kom 41..Df3+
Hér gerði Kanadamaðurinn mistök. 42.Kg1 var nauðsynlegt og hvítur þarf að þjást í endatafli en á einhverja möguleika á að halda jafnteflinu. 42.Hf2? reyndist slakur og kóngurinn var kominn í mátnet nokkrum leikjum síðar.
Ivan Morovich Fernandez og Suat Atalik hafa enn fullt hús en Hannes ætti að fara að mæta efstu mönnum fljótlega.
- Mótið á chess-results
- Beinar útsendingar á lichess
- Beint á Chess24
















