UM ungmenna (u14-u18) fer fram í Montesilvano á Ítalíu dagana 13.-24. nóvember. Hvorki meira né minna en 12 íslensk ungmenni taka þátt. Fram að móti verða íslensku fulltrúarnir kynntir til leiks – 3-4 á dag!
Nú er kynntur til leiks – stigahæsti fulltrúi landsins, FIDE-meistarinn Aleksandr Domalchuk-Jonasson.
HM-fararnir
- FM Aleksandr Domalchuk-Jonasson (u18)
- Benedikt Briem (u18)
- Benedikt Þórisson (u18)
- Þorsteinn Jakob F Þorsteinsson (u18)
- Ingvar Wu Skarphéðinsson (u16)
- Adam Omarsson (u16)
- Iðunn Helgadóttir (u16)
- Mikael Bjarki Heiðarsson (u14)
- Matthías Björgvin Kjartansson (u14)
- Markús Orri Jóhannsson (u14)
- Markús Orri Óskarsson (u14)
- Guðrún Fanney Briem (u12)
- FM/FT Björn Ívar Karlsson (Fararstjóri og þjálfari)
- Gauti Páll Jónsson (Fararstjóri og þjálfari)
Nafn
Aleksandr Domalchuk-Jonasson
Flokkur?
Lokaárið -U18
Hver kenndi þér að tefla og hvað varstu gamall/gömul
Mamma þegar ég var 4-5 ára
Uppáhaldsskákmaður?
Erfitt að velja en ég hef alltaf verið mikill aðdáandi Alekhine.
Hvernig er þínum undirbúningi háttað fyrir HM ungmenna?
Sinna skák vel, tefla mikið og halda mér í góðu líkamlegu formi.
Besta skákin (endilega senda í PGN)
Nokkrar góðar en þessi klikkar ekki.
Hver eru þín markmið á mótinu?
Gera mitt besta, og vonandi enda minn ungmannamótsferil vel!
Eitthvað að lokum?
Áfram Ísland!

















