Heimsmeistaramót ungmenna í aldursflokkum 14-18 ára hófst í dag í borginni Montesilvano á austurströnd Ítalíu. Ferðalagið á staðinn gekk afar vel fyrir sig og mótshaldarar stóðu þokkalega að málum. Eftir góðan nætursvefn gerði íslenski hópurinn sig tilbúinn fyrir skák dagsins sem hófst klukkan 15:00 að staðartíma eða 14:00 að íslenskum tíma. 

Eins og oft áður á svona mótum gafst minni tími til undirbúnings fyrir fyrstu umferð en umferðir munu næstu daga hefjast klukkan 15:00 að staðartíma þar sem pörun verður komin í loftið og góður tími fæst í undirbúning. Hér er milt veður um þessar mundir sem minnir á íslenska sumarið. Þar kemur Botvinnik-göngutúrinn frægi sterkur inn ásamt skákrannsóknum! 

12 Íslendingar taka þátt og eru þeir í eftirfarandi fimm flokkum: 

Opinn flokkur U18
FM Aleksandr Domalchuk-Jonasson
Benedikt Briem
Benedikt Þórisson
Þorsteinn Jakob F Þorsteinsson

Opinn flokkur U16
Ingvar Wu Skarphéðinsson
Adam Omarsson 

Stúlnkaflokkur U16
Iðunn Helgadóttir

Opinn flokkur U14
Mikael Bjarki Heiðarsson
Matthías Björgvin Kjartansson
Markús Orri Jóhannsson
Markús Orri Óskarsson 

Stúlnkaflokkur U14
Guðrún Fanney Briem 

Fararstjórar og þjálfarar í ferðinni eru þeir Björn Ívar Karlsson og Gauti Páll Jónsson. 

Pörun 1. umferðar:

Hlekkir á beinar útsendingar 

Opinn U18
Opinn U16
Stúlkur U16
Opinn U14
Stúlkur U14
chess.com
chess24: Verður uppfært 

Opinn flokkur U18 á chess-results
Opinn flokkur U16 á chess-results
Stúlknaflokkur U16 á chess-results
Opinn flokkur U14 á chess-results
Stúlknaflokkur U14 á chess-results

Heimasíða mótsins

- Auglýsing -