Fyrsta keppnisdegi á HM ungmenna í skák á Ítalíu er lokið.

12 Íslendingar taka þátt og eru þeir í eftirfarandi fimm flokkum: 

Opinn flokkur U18
FM Aleksandr Domalchuk-Jonasson
Benedikt Briem
Benedikt Þórisson
Þorsteinn Jakob F Þorsteinsson

Opinn flokkur U16
Ingvar Wu Skarphéðinsson
Adam Omarsson 

Stúlnkaflokkur U16
Iðunn Helgadóttir

Opinn flokkur U14
Mikael Bjarki Heiðarsson
Matthías Björgvin Kjartansson
Markús Orri Jóhannsson
Markús Orri Óskarsson 

Stúlnkaflokkur U14
Guðrún Fanney Briem 

Fararstjórar og þjálfarar í ferðinni eru þeir Björn Ívar Karlsson og Gauti Páll Jónsson. 

Íslensku keppendurnir ásamt þjálfurum við upphaf 1. umferðar Mynd: Óskar Jensson
Pörun og úrslit 1. umferðar

Opinn flokkur U18

Í fyrstu umferð sýndi Aleksandr Domalchuk-Jonasson klærnar snemma leiks og beitti Benkö bragði með svörtu gegn CM frá Malasíu. Það er engin launung um það að kandídatameistarar geta reynst skeinuhættir. Staða svarts var aldrei í hættu en ekki gáfust nægileg færi því miður í þessari skák til að tefla til vinnings. Eftir mikil uppskipti einfaldaðist staðan í jafnt hróksendatafl. Okkar maður er 15. stigahæsti maður mótsins og verður vonandi fljótur að færa sig aftur á efstu borð! 

Benedikt Briem yfirspilaði stigaháan Kasaka í byrjun tafls, en hann fann snoturn drottningarleik sem þvingar fram peðsvinning. Þegar Bendekt var búinn að byggja upp góða en vandmeðfarna stöðu fataðist honum flugið og missti skákina niður í tap. Svekkjandi, en það er nægur tími til að rétta úr kútnum.

Í eftirfarandi stöðu lék Benedikt 14. … Dd3! sem vinnur peð.

Benedikt Þórisson lenti snemma í leiðindabeiglu í þessari skák. Eftir peðsvinning bætti norski Fide meistarinn við völduðu frípeði og þá voru góð ráð dýr. Hvítur tefldi kerfi gegn kóngs-indverskri eða Grunfeld uppstillingu sem leynir á sér, róleg framan af með e3 og b3 en seinna ráðist á miðborðið. Það er ekki spurning að Benedikt smellir núna þessum varíanti í handraðann. 

Þorsteinn Jakob tefldi byrjunina hratt enda þekkti hann fræðin nokkkuð vel. Honum varð þó á í miðtaflinu og tók eitrað peð sem svartur fékk ákaflega hættuleg færi fyrir. Frumkvæði svarts varð of mikið og Þorsteinn Jakob tapaði skömmu síðar.

Opinn flokkur U16 

Ingvar Wu tefldi góða skák með svörtu gegn alþjóðlega meistaranum Jan Karsten frá Suður-Afríku. Upp úr katalónskri byrjun kom endatafl þar sem Ingvar hafði góðan riddara gegn slæmum biskup og virkari stöðu. Eftir uppskipti sem voru svörtum í hag varð hvíta staðan furðu fljótt óteflanleg og sigldi Ingvar sigrinum heim í 40 leikjum. Sannarlega góð byrjun hjá Ingvar Wu, nýkrýndum skákmeistara Taflfélags Reykjavíkur! 

Adam Omarsson tefldi eðlilega teoríu með hvítu í Nimzo-indverskri vörn en tók síðan ákvörðun sem tölvurnar meta jafna en getur verið vafasöm, ýta staka peðinu frá d4 á d5 og við taka uppskipti. Hins vegar var peðaát á e6 með skák líklega eitrað og ansi snöggt opnuðust flóðgáttir þungu manna svarts sem blésu til orrustu ásamt riddurunum. Miðtafl sem hægt er að læra af. 

Stúlknaflokkur U16

Iðunn Helgadóttir var með hvítt á 7. borði í fyrstu skákinni gegn hinni tékknesku Lada (Lödu?!) Zelbova. Staðan var framan af í járnum en aftur kom valdað frípeð við sögu, í þetta sinn alla leið á h2. Það reyndist erfitt mál að leysa með samlita biskupa og tapaðist endataflið að lokum þó tölvan vilji meina að það sé varnarmöguleikar fyrir afleik í 44. leik. 

Opinn flokkur U14 

Mikael Bjarki Heiðarsson lék eylítið ónákvæmt í byrjun og svartur fékk stöðu sem var þægilegri að tefla. Vörnin getur reynst erfið til langs tíma og að lokum reyndist riddari Fide meistarans Zi Han Goh of erfiður viðuriegnar og endataflið tapaðist. 

Matthías Björgvin Kjartansson fékk það ærna verkefni að tefla við Þjóðverja með mjög þýskt nafn, hann Magnus Ermitsch. Hver ætli sé sterkasti skákmaður í heimi með sch stafabununa í nafninu sínu? Eftir mikla baráttu í miðtafli kom staða með hangandi peð á c5 og d5. Svartur ýtti peðinu sínu á c4 og þá þurfti Matthías að drepa peðið þrátt fyrir leppun eftir c-línunni sem virðist óþægileg. Hins vegar tefldist skákin þannig að peðin runnu áfram og ollu miklum usla. Önnur dæmigerð miðtaflsstaða úr 1.d4 strúktúr sem læra má af. 

Markús Orri Ó. fékk þrönga stöðu eftir byrjunina og náði aldrei almennilega að ljúka liðskipan sinni. Honum tókst þó að leggja erfið verkefni fyrir andstæðinginn en hann leysti vel úr þeim. Hvítur fékk hættuleg færi á kóngsvængnum í framhaldinu sem Markús Orri réð ekki við og tapaði.

Markús Orri J. tefldi afbrigði í byrjuninni í fyrsta sinn á ævinni sem lukkaðist mjög vel. Honum tókst að slá andstæðinginn út af laginu og fá betra tafl. Í miðtaflinu átti hann kost á riddaratilfærslu sem hefði líklega gefið honum mjög vænlega stöðu en hleypti andstæðingnum þess í stað inn í skákina. Í framhaldinu endaði Markús peði undir í endatafli sem honum tókst ekki að halda. 

Stúlknaflokkur U14 

Guðrún Fanney Briem nýtti sér afar losaralega taflmennsku andstæðings síns í fyrstu umferð. Þó einkenndi líka taflmennskuna þolinmæði, ekki látið til skara skríða fyrr en allir kallarnir voru tilbúnir. Þegar staðan opnaðist í miðtaflinu varð fáránleg staðsetning kóngsins hvítum að falli og riddari fór í hafið, þá líklega Adríahafið. Góður sigur hjá Guðrúnu í 1. umferð. 

Keppnishöllin, Pala Dean Martin, sem nefnd er í höfuðið á stórleikaranum og söngvaranum Dean Martin – en hann á ættir sínar að rekja til Montesilvano.
Í matsalnum eru borð sérmerkt eftir þjóðerni. Við sjóndeildarhringinn sést yfir Adríahafið til Svartfjallalands þar sem íslensku landsliðin sitja að tafli á EM landsliða.

Mótshaldið fer ágætlega af stað. Keppnishöllin er rúmgóð og skipulagið við upphaf fyrstu umferðar var betra en menn eiga að venjast á mótum sem þessum. Allt gekk hratt og vel fyrir sig. Nægt rými er fyrir keppendur í höllinni og tefla allir aldursflokkarnir í sama rými.
Íslenski hópurinn dvelur á hótelinu Club Esse Mediterraneo við Adríahafið. Hótelið er þokkalegt að mörgu leyti en sá galli er á gjöf Njarðar að netsamband er ekki til staðar nema í lobbýinu. Hefur þetta valdið ákveðnum áskorunum fyrir gesti hótelsins, bæði keppendur sem vilja nýta netið til undirbúnings og foreldra sem vilja sinna vinnu sinni að heiman.
Góður andi er í íslenska hópnum, sem þrátt fyrir rýra uppskeru úr 1. umferð, er vel gíraður í átökin sem framundan eru. Langt mót af þessu tagi, ellefu umferðir, snýst að miklu leyti um úthald og seiglu og það er íslenski hópurinn vel undirbúinn fyrir.

Hlekkir á beinar útsendingar 

Opinn U18
Opinn U16
Stúlkur U16
Opinn U14
Stúlkur U14
chess.com
chess24

Opinn flokkur U18 á chess-results
Opinn flokkur U16 á chess-results
Stúlknaflokkur U16 á chess-results
Opinn flokkur U14 á chess-results
Stúlknaflokkur U14 á chess-results

Heimasíða mótsins

- Auglýsing -