Davíð Kolka, varð skákmeistari Kópavogs í gær. Gunnar Erik varð unglingameistari Kópavogs. Mynd: Skákdeild Breiðabliks.

Skákþingi Kópavogs lauk í kvöld með sigri Tómasar Björnssonar sem hlaust sex vinninga af sjö mögulegum. Davíð Kolka varð annar og um leið Skákmeistari Kópavogs 2023. Í þriðja sæti varð Gunnar Erik Guðmundsson og þá Unglingameistari Kópavogs 2023. Fjórði varð Guðni Stefán Pétursson.

Sigurður Páll Guðnýjarson fékk verðlaun fyrir annan besta árangur 16 ára og yngri í mótinu.

Mótið fór vel fram í öruggri skákstjórn Kristjáns Arnars Elíassonar. Að þessu sinni var bæði keppendafjöldi og styrkleiki minni en oft áður en það stjórnaðist aðallega af því að stór hluti væntanlegra keppenda var að tafli erlendis. Einnig gæti þétt mótadagskrá haustsins haft áhrif.

En þeir sem gátu mætt áttu gott mót og við óskum verðlaunahöfum til hamingju með sinn árangur. Athygli vakti árangur Péturs Úlfars Ernissonar 8 ára sem tefldi á efsta borði í lokaumferðinni.

Nánari úrslit á Chess-Results: https://chess-results.com/tnr853999.aspx?lan=1&art=4&turdet=YES&flag=30

Myndaalbúm: https://chess-results.com/Fotos.aspx?lan=1&key1=14804

- Auglýsing -