Kristján Örn Elíasson hefur um margra mánaða skeið stjórnað, ákaflega vel heppnuðum, vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið.
Í síðustu viku mætti Þorvarður Fannar Ólafsson í settið í Skipholtinu. Í kynningu um þátttinn segir meðal annars:
Kristján Örn Elíasson ræðir við Þorvarð Fannar Ólafsson skákmeistara og sölumann hjá Myllunni. Þorvarður bjó í Grindavík og lærði þar mannganginn ungur að árum eða þegar hann var aðeins 5 ára gamall. Í fyrstu tefldi hann aðallega í heimahúsum við ættingja og vini. Blómlegt skáklíf var í Grunnskóla Grindavíkur á þessum tíma og fljótlega varð Þorvarður meðal sterkustu skákmanna skólans. Hann varð skólameistari í skák árin 1984, 1985 og 1986. Sigurinn gaf honum þátttökurétt í Gullbringu-sýslumótinu sem Þorvarður nýtti sér með góðum árangri. Þeir félagarnir fóru um víðan völl í spjalli sínu, m.a. yfir hálfan hnöttinn þar sem þeir lentu á Filippseyjum árið 2009. Þar tók Þorvarður þátt í að kaupa borð, stóla og töfl fyrir nokkra skákáhugamenn sem stofnuðu skákfélag sem hefur vaxið og dafnað allar götur síðan. Þorvarður hefur reglulega heimsótt klúbbinn, tekið þátt í skákmótum en hann segir að hann hafi aldrei teflt við jafn marga sterka stigalausa skákmenn.
Slóð á skákfélagið á Filippseyjum: San Carlos-Negros Chess Club
Þáttinn má nálgast á Spotify.
- Auglýsing -
















