Vignir Vatnar að tafli.

Landsliðsmennirnir Vignir Vatnar Stefánsson og Hilmir Freyr Heimisson sitja nú að tafli á alþjóðlegu móti í Búdapest í Ungverjalandi og titilveiðarinn Aleksandr Domalchuk-Jonasson er með þeim í för. Mótið ber nafnið SixDays Budapest og er teflt í lokuðum flokkum. Vignir og Aleksandr tefla í GM flokki og Hilmir í IM flokki. Vignir og Hilmir eru báðir stigahæstir í sínum flokkum.

GM-flokkur

Vignir hóf leik í fyrst umferð með því að leggja stórmeistarann Adam Horvath (2429). Vignir tefldi hvasst gegn Sikileyjarvörn og var kominn með álitlega sóknarstöðu á svörtu reitunum og hótaði öllu illu á g7 reitnum.

Vignir kláraði svo dæmið með stæl, eftir síðasta leik svarts 31…Hb8xb2+ kom lokahnykkurinn 32.Dxb2! axb2 33.Hd8 og svartur gafst upp enda fátt um varnir.

Aleksandr mætti Indverjanum Chakraborty Mayank (2368) en alls eru Indverjarnir fjórir í þessum flokki! Teflt var London en snemma í miðtaflinu fór eitthvað úrskeiðis og Aleksandr með hvítu tapaði peði sem Indverjinn nýtti sér til fullnustu og vann skákina.

Í dag, þriðjudag er tefld tvöföld umferð.

Chess-Results fyrir GM flokk

IM-flokkur

HIlmir Freyr að tafli á EM.

Hilmir eins og áður sagði stigahæstur í flokknum. Hann hafði hvítt eins og Vignir í fyrstu umferðinni og mætti þar alþjóðlega meistaranum og reynsluboltanum Adam Szeberenyi. Adam hefur um árabil teflt í þessum lokuðu flokkum í Ungverjalandi og greinarhöfundur tefldi t.a.m. við hann á First Saturday mótinu fyrir allt of mörgum árum!

Eins og margir Ungverjar af hans kynslóð teflir hann og hefur haldið tryggð við Grunfeldsvörnina. Hilmir vann peð í byrjuninni en eins og oft vill verða í Grunfeld hafði svartur nægjanlegt spil fyrir peðið og Adam greinilega með fínu reynslu í slíkum stöðutýpum og komst í endatafl þar sem jafnteflið var óumflýjanlegt.

IM flokkur á Chess-Results

Sama prógram er hjá Hilmi og tvær umferðir tefldar í dag.

- Auglýsing -