Jólapakkaskákmót TG fer fram á sunnudaginn

0
2002

Jólapakkaskákmótið verður sunnudaginn 17. desember næstkomandi í Miðgarði í Garðabæ. Yngri hópur kl. 11:00 og eldri kl. 14:00

Amk. 3 jólapakkar verða í verðlaun fyrir bæði stráka og stelpur í hverjum flokki auk. amk. 3 happdrættisvinninga og er reiknað með að keppt verði í allt að 6 aldursflokkum auk peðaskákar fyrir þau yngstu. Allir keppendur fá glaðning að móti loknu að venju.

Tímamörk 7 mínútur á skák. Reiknað er með 5 umferðum í hverjum flokki.

A flokkur börn og unglingar fædd 2008 til 2010. kl. 14.00
B flokkur börn fædd 2011 til 2012 kl. 14.00
C flokkur börn fædd 2013 til 2014 kl. 14:00
D flokkur börn fædd 2015. kl. 14:00

E flokkur börn fædd 2016 kl. 11:00
F flokkur börn fædd 2017 og yngri. kl.11:00 .

Peðaskák kl. 11:15 er svo tilvalin fyrir börn sem kunna ekki að máta með 1-2 mönnum. til dæmis 2 hrókum eða drottningu í endatafli.

Skráningarhlekkur

Hægt er að sjá skráða með því að smella hér

Skráningu lýkur kl. 10.00 föstudaginn 15. desember. 

Þátttökugjöld 1000 kr. Óskast millifært á reikning TG.  kt: 4911952319 rnr:546-26-2124.

Nánari upplýsingar í með því að senda póst á tg@tafl.is

Mótsstaður:
Miðgarður, fjölnota íþróttahús, Vetrarmýri 18, Garðabæ

Hlökkum til að sjá ykkur!!!!!

- Auglýsing -