Anish Giri er enn efstur á Tata Steel mótinu í Sjávarvík. Anish fækk óvænta sendingu frá kvenþjóðinni þar sem Ju Wenjun lagði Alireza að velli. Eline Robers hafði einnig stór áhrif í Áskorendaflokknum en þar lagði hún sjálfan Hans Niemann að velli!

Ef einhver hefði giskað á að sigurganga Alireza Firouzja undanfarnar vikur yrði stöðvuð af heimsmeistara þá hefðu flestir giskað á Ding Liren. Það var hinsvegar heimsmeistari kvenna, Ju Wenjun sem lagði hann að velli en Alireza hafði fengið 15 vinninga úr síðustu 17 kappskákum þar á undan, taplaus!

Upp kom frönsk vörn og Ju Wenjun tefldi uppskiptaafbrigðið. Alireza varð kannski aðeins of æstur í að reyna að búa eitthvað til og endaði með verra endatafl og tapaði peði. Peðið nægði þeirri kínversku tli að kreysta fram sigur.

Sögulegur sigur hjá Ju Wenjun, stigahæsti skákmaður sem hún hefur lagt að velli og jafnframt einn stigahæsti skákmaður sem ríkjandi heimsmeistari kvenna hefur lagt að velli.

 

Mikið var um jafntefli í umferðinni og eina sigurskákin fyrir utan Ju Wenjun var hjá Gukesh. Gukesh lagði Nepomniachtchi að velli.

Rússinn eldhressi lék af sér hér með 34…Bb4?? og Gukesh fann vinninginn 35.Rxc6!! þar sem svartur heldur ekki valdinu á biskupnum á b4.

Jafnteflið hjá Giri heldur honum því í efsta sæti með 4 vinninga og hefur hann nú vinningsforskot á næstu menn, Pragga, Abdusattorv, Firouzja og Wei Yi.

Áskorendaflokkur

Hans Niemann var efstur ásamt tvimur öðrum fyir umferðina. Margir vilja mögulega sjá hann vinna Áskorendaflokkinn og mæta Magnus Carlsen að ári. Þau plön fengu hinsvegar smá babb í bátinn þegar Eline Robers vélaði mann af Niemann í flækjum í miðtaflinu.

Íslandvinurinn Erwin l’Ami er nú einn efstur með 4 vinninga.

Á morgun komið að sjöttu umferð og næsti frídagur á mánudaginn.

- Auglýsing -