Giri sussar á gagnrýnendur sína. Mynd: Chess24.

Anish Giri er enn efstur á Tata Steel mótinu í Sjávarvík. Tíðindi dagsins voru að Alireza vann upp hálfan vinning af forskoti Giri og Gukesh vann sig inn í toppbaráttuna með sinni annarri sigurskák í röð.

Gukesh mætti meistaranum frá 2021, Jorden van Foreest sem hefur verið seinheppinn á mótinu og var að tapa sinni þriðju skák með hvítu mönnunum.

Ákvörðun Jorden í 22. leik virtist ráða úrslitum. Í stað t.d. 22.De3 og hvítur heldur bótum fyrir peðið kom 22.Df2? og Gukesh fékk annað peð eftir 22…Rbxd3 og virtist hafa fulla stjórn á stöðunni. Hann fórnaði svo peði til baka fyrir yfirburða sóknarstöðu. Gukesh kláraði svo dæmið með betri útreikningum en hann er í allra fremstu röð í flóknum útreikningum.

Giri hefði í raun átt að auka við forskot sitt en hann mæti öðrum keppanda sem er ekki í sínu besta formi, Parham Maghsoodloo. Giri hafði lengst af pressu en missti af vinningi og skákin einfaldaðist í jaftefli þess í stað í endataflinu.

Eftir 37…hxg3 var Giri full fljótur á sér og lék 38.Dxg3?? þegar 38.Df6! hefði dugað til vinnings. Hvítur heldur g-peðinu og hótar drottningakaupum. 38…Hxg6 gengur ekki vegna 39.Dh8+ og svarti kóngurinn fer á vergang og lifir það ekki af!

Firouzja vann sig aftur inn í toppbaráttuna með því að kvitta út tapið í gær. Segja má að hér hafi mæst núverandi vonarstjarna skákheimsins gegn einni fyrrverandi…sem þó má ekki afskrifa!

Firouza vann peð af Wei Yi og náði að láta það telja.

Giri hefur nú 4,5 vinning af 6 og Alireza 4 vinninga. Næst koma fjórir skákmenn með 3,5 vinning.

Erwin l’Ami heldur forskoti í Áskorendaflokki með 4,5 vinning og þrír skákmenn hafa 4 vinning.

Á morgun komið að áttundu umferð og næsti frídagur á mánudaginn.

- Auglýsing -