Hannes að tafli á EM einstaklinga í Natura 2021.

Hannes Hlífar Stefánsson (2496) gerði jafntefli í lokaumferðinni með hvítu mönnunum gegn gegn FIDE meistaranum Robert Stein (2429) frá Þýskalandi. Mótið var hluti af Marienbad Open og tefldi Hannes í lokuðum 10 manna flokki og var stigahæstur keppenda.

Þýskur andstæðingur hans í dag bauð snemma tafl jafntefli sem Hannes þáði. Báðir voru þeir í neðri hlutanum og ekki að eiga gott mót.

Hannes endaði með 4 vinninga af 9 mögulegum sem skilaði 5-9. sæti. Hannes lækkar um 17 elóstig á þessu móti.

- Auglýsing -