Sjöunda umferð Skákþings Íslands hófst kl. 15 í dag. Helgi Áss er efstur með 5½ vinning og Vignir Vatnar annar 5 vinninga. Rétt eins og forsetakosningum virðast fjórir berjast um um að verða kóngurinn og tveir þeirra rétt á eftir á oddafiskunum. Hilmir Freyr Heimisson og Hannes Hlífar Stefánsson eru í 3.-4. sæti með 4 vinninga.
Aðalviðureignir dagsins verða að teljast skákir Hannesar Hlífars og Helga Áss annars vegar og Hjörvar Steinn og Vignir Vatnar hins vegar.
Umferð dagsins:
- Hannes Hlífar Stefánsson (4) – Helgi Áss Grétarsson (5½)
- Hjörvar Steinn Grétarsson (2) – Vignir Vatnar Stefánsson (5)
- Hilmir Freyr Heimisson (4) – Aleksandr Domalchuk-Jonasson (3½)
- Lenka Ptácníková (1) – Héðinn Steingrímsson (3)
- Dagur Ragnarsson (2½) – Bárður Örn Birkisson (2)
- Olga Prudnykova (1½) – Guðmundur Kjartansson (2)
Umferðin hófst kl. 15. Bein lýsing Ingvars Þórs hefst um tveimur tímum síðar.
Tilvalið að kíkja á skákstað. Skáktilboð á veitingastaðnum og hægt að fylgjst með og spjalla um leið.
- Chess-Results
- Skákskýringar á YouTube
- Beint á Chess.com
- Beint á Lichess
- Beint á Chessbase
- Auglýsing -
















