Guðmundur Kjartansson . — Ljósmyndir/Ómar Óskarsson

Landsliðsmaðurinn Guðmundur Kjartansson kláraði opna mótið í Munchen með sigri í lokaumferðinni. Guðmundur endaði með 6,5 vinning á mótinu og stóð nokkurn veginn í stað stigalega.

Guðmundur mætti Þjóðverjanum Alexander Herbig (2279) í lokaumferðinni og hafði hvítt. Baráttuskák varð uppi á tengingnm og átti Þjóðverjinn á köflum hættuleg færi en Guðmundur náði að halda skákinni í jafnvægi og stöðulegri baráttu. Í mildu tímahraki varð svörtu fótaskortur og nánast upp úr þurru stóð Guðmundur uppi með unnið tafl sem hann væntanlega þáði með þökkum!

Guðmundur endaði með 6,5 vinning af 9 og endaði í 6-8. sæti, hálfum vinningi á eftir efstu mönnum. Efstu menn fengu 7 vinninga og þar var Slóveninn Vladimir Fedoseev efstur á stigum. Guðmundur stendur eins og áður sagði í stað á stigum en stefnir væntanlega á 2500 stiga múrinn eins og margir þessa dagana.

 

- Auglýsing -