Bárður Örn Birkisson tók í kvöld forystu í Áskorendaflokki þegar hann lagði Gauta Pál Jónsson að velli í toppbaráttunni. Litlu mátti muna að Björn Hólm Birkisson næði honum að vinningum en hann náði ekki að knésetja Arnar Milutin Heiðarsson en þeir skildu jafnir.
Bárður tefldi feykilega þétta skák gegn Gauta. Bárður virtist hafa sitt á hreinu í byrjuninni og virtist vera vel með á nótunum í miðtaflinu. Líklegast var það svörtu stöðunni um of að veikja svörtu reitina með því að gefa eftir svartreita-biskupinn. Sannfærandi taflmennska hjá Bárði sem virðist vera kominn í stuð og verður að teljast ansi líklegur að næla sér í miða í næsta Landsliðsflokk!
Björn Hólm virtist lengst framan af skák líklegri þar sem Arnar gaf miðborðið eftir full auðveldlega í byrjuninni. Hvítur hafði alltaf meira rými og betri færi en Arnar varðist vel í skotgröfunum og hleypti Birni ekki í gegn. Jafntefli varð niðustaðan.
Lenka náði að leggja Jóhann Ragnarsson að velli með svörtu. Lenka vann peð í Nimzanum en hvítur hafði þó bætur. Taktískt virtist framrás c-peðs hvíts hinsvegar vera röng og Lenka náði að vinna mann og hafa hemil á frípeði hvíts.
Ingvar Wu vann skiptamun með taktísku skoti snemma í miðtaflinu gegn Roberto Osorio Ferrer
15.e5! vann lið og úrslitin aldrei í hættu eftir það.
Benedikt Þórisson lagði Markús Orra Óskarsson þar sem svartur virðist gera mistök í byrjuninni með …Bd7 og hvítur vann fljótt d6-peðið.
Óttar Örn Bergmann Sigfússon var við það að ná aftur góðum úrslitum en Kristján Örn náði að halda erfiðu hróksendatafli peði undir.
Úrslit

Staðan

Baráttan en hörð um sætin tvö í Landsliðsflokki. Bárður leiðir mótið en fjórir skákmenn eru aðeins hálfum vinningi á eftir honum. Arnar hefur hvítt gegn Bárði í 7. umferð, Lenka hefur hvítt gegn Birni Hólm og Gauti hefur hvítt gegn Ingvari Wu. Spenna framundan og úrslit ráðast um helgina!
Umferðirn á morgun er klukkan 18:30, laugardagsumferðin er klukkan 15:00 vegna aðalfundar SÍ og lokaumferðin klukkan 13:00 á sunnudaginn
















