Aleksandr Domalchuk-Jonasson tapaði sinni skák í lokaumferðinni á HM u20 í Gujrati á Indlandi. Andstæðingur Aleksandrs var rússneski stórmeistarinn Alexey Grebnev (2540), næststigahæsti skákmaður mótsins.

Aleksandr hafði hvítt í skákinni og upp kom Nimzo-indversk vörn, Dc2 afbirgðið. Svartur beitti nýmóðins afbrigði með …h6 og lenti Aleksandr í vandræðum með liðsskipan sína í byrjuninni. Þessi vandræði kostuðu skiptamunstap. Eftir það vann Aleksandr sig jafnt og þétt inn í skákina og var ekki langt frá því að ná að redda jafntefli úr skákinni en varð að lúta í dúk eins og áður sagði.

Tapið þýðir að Aleksandr endaði með 6,5 vinning af 11 mögulegum og endaði í 24-38. sæti. Stigalega kom Aleksandr út nokkurn veginn á sléttu, hækkaði um 0,8 stig. Heimsmeistari varð Kazaki, Kazybek Nogerbek (2502) sem endaði með 8,5 vinning og hafði betri oddastig en Emin Ohanyan (2501) sem Aleksandr mætti einmitt fyrr á mótinu.

Aleksandr lét vel að aðstæðum, maturinn mjög góður þó sterkur væri og keppnisaðstæður mjög góðar. Loftræsting góð þannig að keppendur fundu lítið fyrir hitanum og anti-cheating varnir voru í góðu lagi. Aleksandr hlakkar til að spreyta sig á þessu móti að ári sem verður hans síðasti séns.

Næst á dagskrá er mót í Riga þar sem Aleksandr mun ásamt Vigni og Hilmi taka þátt í hraðskákmóti, atskákmóti og loks fjögurra daga kappskákmóti þar sem tefldar verða tvær umferðir á hverjum degi.

- Auglýsing -