EM ungmenna í skák hófst í dag í Prag. Íslensku fulltrúarnir á mótinu er 23 talsins, sem er metfjöldi. Alls telur íslenski hópurinn í kringum 60 manns enda eru á svæðinu bæði foreldrar, ömmur og afar og ýmsir aðrir áhugasamir fjölskyldumeðlimir. Gríðarlega stór og flottur hópur.
Teflt er í aldursflokkunum u8, u10, u12, u14, u16 og u18.

Fulltrúar Íslands á mótinu eru:

Þjálfarar íslenska hópsins eru Björn Ívar Karlsson, Daði Ómarsson og Ingvar Þór Jóhannesson. Gauti Páll Jónsson bætist í þjálfarahópinn síðar.

Mótið fer fram í þremur ráðstefnusölum á Top Hotel, í útjaðri borgarinnar. Íslenski hópurinn gistir miðsvæðis og fer því smá tími í ferðalög á milli staða sem ganga vel. Aðstæður á mótstað eru nokkuð góðar, loftkældir salir og nægt pláss. Það fer ágætlega um foreldrahópinn á meðan sem hefur úr ýmsu að velja til þess að stytta sér stundir.

Katrín María, Guðrún Fanney og Iðunn klárar í slaginn. Mynd: Una Strand

1. umferð var töluverð áskorun fyrir flesta Íslendinganna en 21 keppandi af 23 var paraður upp fyrir sig á skákstigum. Uppskeran var ekki mikil en taflmennskan var góð heilt yfir og margt jákvætt hægt að taka úr umferðinni.

Úrslit 1. umferðar

Birkir lagði stigahærri andstæðing að velli í vel útfærðri skák. Guðrún Fanney vann einnig en Jósef og Markús Orri Ó. gerðu báðir jafntefli við stigahærri andstæðinga.

Jósef Omarsson við upphaf 1. umferðar – Mynd: Omar
Pörun 2. umferðar

Umferðir hefjast öllu jöfnu kl. 13:00 að íslenskum tíma. Sýnt er beint frá efstu borðum hvers aldursflokks.

Heimasíða mótsins
Chess-results
Beinar útsendingar

- Auglýsing -