Kristján Örn Elíasson hefur um margra mánaða skeið stjórnað, ákaflega vel heppnuðum, vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið.
Um þátt gærdagsins segir svo.
Það er stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson núverandi Íslandsmeistari í skák sem setst niður Við skákborðið að þessu sinn. Þeir Kristján Örn ræða um nýlokið Borgarskákmót sem lauk með sigri Helga, Ólympíuskákmótið sem haldið verður í Búdapest í Ungverjalandi dagana 10.-23. september nk. Þeir töluðu við Björn Ívar Karlsson nýráðinn skólastjóra Skákskóla Íslands sem í morgun fór utan með stóran hóp barna og unglinga á EM ungmenna í Prag í Tékklandi. Um er að ræða 23 keppendur, 4 þjálfara og fjölda aðstandenda eða alls um 60 manns. Þetta mun vera langstærsti hópur sem Skáksamband Íslands hefur sent til keppni á erlenda grund. Helgi sagði frá undirbúningi stórmeistarans Vignis Vatnars Stefánssonar fyrir Ólympíumótið en hann hefur verið iðinn við að keppa á mótum erlendis í sumar, hækkað mikið á skákstigum og hefur Helgi mikla trú á okkar yngsta stórmeistara.
Einnig ræddu þeir um flesta af sterkustu skákmönnum heims sem hafa verið að keppa sín á milli að undanförnu, s.s. á Saint Louis at- og hraðskákmótinu sem Firouzja Alireza vann, Sinquefield Cup mótinu sem er í fullum gangi, væntanlegt einvígi Magnúsar Carlsen og Hans Niemann í París í byrjun næsta mánaðar og heimsmeistaraeinvígi núverandi heimsmeistara kínverjans Ding Liren og indverjans Dommaraju Gukesh en það mun fara fram í Singapúr dagana 20. nóvember til 15. desember nk. Það er því hægt að fullyrða að heimsmeistaratitillinn verður áfram í Asíu.
Eldri þætti má nálgast hér á Spotity.
- Auglýsing -