Vignir Vatnar að tafli.

Gengi íslensku keppandanna í fimmtu umferð á opna Festival Internacional de Ajedrez Ciudad de Gáldar 2024 á Kanaríeyjum var sérdeilis prýðilegt. Íslensku keppendurnir fengu þrjá vinninga af fjórum mögulegum og engin tapskák kom í dag.

Vignir Vatnar Stefánsson var fyrir umferðina í bestu stöðunni af Íslendingunum með 3,5 vinning af 4 mögulegum. Dagur Ragnarsson og Aleksandr Domalchuk-Jonasson máttu vel við una með 3 vinninga af 4 og ekki var langt í Alexsander Oliver Mai með 2,5 vinning.

Í fimmtu umferðinni mætti Vignir einum reyndasta stórmeistara heims (not gonna lie eins og unglingarnir segja!) sjálfum Bojan Kurajica (2409) frá Króatíu. Þrátt fyrir gríðarlega reynslu Bojan hefðu nú líklegast flestir sett aurinn sinn á Vigni fyrir skákina þrátt fyrir að hann hafi haft svörtu mennina. Vignri gaf líka strax til kynna að hann ætlaði sér að vinna með því að tefla hollensku vörnina. Bojan til tekna tók hann fast á móti en engu að síður var Vignir kominn með mjög vænlega stöðu í kringum 20. leik og sleppti ekki tökunum. Æskan hafði betur gegn ellinni að þessu sinni!

Góð úrslit hjá Vigni og þar sem nánast öll efstu borðin enduðu með jafntefli er Vignir nú jafn öðrum í efsta sæti!

Aleksandr Domalchuk-Jonasson hafði hvítt á stórmeistarann Julen Luis Arizmendi Martinez. Skemmst er frá því að segja að skákin endaði með jafntefli og tölvumatið sveiflaðist aldrei neinum í hag og má segja að báðir hafa staðist prófið í dag og jafntefli rökrétt úrslit.

Í raun mætti nota nákvæmlega sömu lýsingu á skák Dags Ragnarssonar gegn Nico Swirz. Dagur hefur verið að tileinka sér Reti-byrjanakerfið með hvítu sem er mjög traust og ef góðir skákmenn tefla það traust með hvítu er lítið sem svartur getur gert. Nico fékk einhverja ör-sénsa en Dagur tefldi traust og jafnteflið nánast aldrei í hættu.

Alexander Oliver Mai var ekki í beinni en hann kláraði sína skák gegn CM Raul Quintero (1944). Alls komu því glimrandi 3 vinningar af 4 mögulegum í hús hjá íslensku strákunum í dag, sérdeilis prýðilegt!

Í 6. umferðinni teflir Vignir á efsta borði og hefur hvítt gegn Karen Movziszian, armenskum ref sem teflir g3-system með hvítu og g6-system með svörtu og erfitt getur verið að undirbúa sig fyrir hann. Lúmskur skákmaður sem tefldi í deildakeppninni á Íslandi og stóð sig mjög vel.

Vignir er í toppbaráttuni með 4,5 vinning. Allir hinir íslensku keppendurnir hafa 3,5 vinning og hafa ALLIR svart í sjöttu umferð og tefla allir niður fyrir sig nema Alexander Oliver. Mikilvæg umferð sem gæti skilgreint mótið hjá þeim öllum!

- Auglýsing -