Vignir á palli á Kanarí

Vignir Vatnar Stefánsson virðist kunna einstaklega vel við sig á Spáni og kláraði sinn annan mótasigur í röð nú fyrr í dag. Fyrir rúmri viku vann hann mótasigur á Tenerife og nú var það opna Festival Internacional de Ajedrez Ciudad de Gáldar 2024 á Kanaríeyjum sem Vignir sigraði á. Yfir 140 skákmenn tóku þátt á mótinu og þar af 11 stórmeistarar.

Fyrir lokaumferðina var Vignir í efsta sæti ásamt Aleksandr Domalchuk-Jonassyni og þremur öðru skákmönnum með 6,5 vinning af 8.

Aleksandr tapaði sinni skák gegn GM Tomas Beerdsen (2509). Aleksandr var snemma í vandræðum gegn góðum byrjanaundirbúningi Beerdsen og náði ekki að vinna sig inn í skákina.

Þrátt fyrir tapið var þetta fínt mót hjá Aleksandr sem hlaut verðlaun fyrir árangurinn.

Vignir áttaði sig á því að hann þurfti líklegast að vinna gegn stórmeistaranum GM Andrey Sumets (2517) með hvítu þar sem oddastig hans myndu líklegast ekki nægja til sigurs á mótinu.

Skak.is heyrði aðeins í Vigni:

„Eftir gott samtal við Birki Ísak, sem hefur verið aðstoðarmaður minn undanfarið, þá ákváðum við að tefla 1.e4 gegn Sumets. Sú ákvörðun var fyrst og fremst byggð á því að hann teflir ekki 1…e5 með það fyrir augum að „drepa taflið“ og vorum við sáttir við að undirbúa okkur gegn Caro-kann eða Frakka.“

Caro-kann vörnin kom upp og gefum Vigni aftur orðið:

„Ég var undirbúinn fram í ca. 16. leik en hann samt out-preparaði mig að vissu leiti og ég vissi að baráttan yrði erfið þegar hann var fljótur að leika Hc8-c7-d7. Í skákinni áttaði ég mig á því að við vorum meira og minna með sömu stöðu eða svipaða og Jóhann Hjartarson fékk með hvítu gegn Paulius Pultinevicius á Reykjavíkurskákmótinu. Ég mundi að Jóhann lék g-peðinu sínu á g3 og lenti seinna í skákinni í vandræðum með kónginn. Ég ákvað því að geyma peðið á g2.“

Skákin fór svo í mikla stöðubaráttu en Vignir fannst hann alltaf hafa aðeins betra

Mér fnnst miðtaflið örlítið betra á mig og ég var staðráðinn í að vinna. Þegar ég náði að fórna skiptamun fyrir riddarann hans leið mér mjög vel, þótt ég þyrfti að sitja í 7 tíma í viðbót var ég viss um að ég myndi ná sigri á endanum!

Sigurinn náðist að lokum í maraþonskák!

Skák Jóhanns gegn Pultinevicius sem Vignir vísaði í.

Vignir rétt eftir að skákin kláraðist, síðasta skák mótsins og sigurinn í höfn!

Við spurðum Vigni hvernig tilfinning hafi verið?

Það var rosalega góð tilfinning að ná að klára með sigri og ná sigri á tveimur alþjóðlegum mótum í röð. Segja má að ég sé núna í algjöru spennufalli eftir þetta, það fór mikil orka í síðustu skákina og bara mótin undanfarið. Nú er bara að ná orkunni aftur og halda áfram dampinum á Ólympíuskákmótinu

En hverju þakkar Vignir árangrinum undanfarið? Nú eru tveir mótasigrar komnir í röð og elóstigin í kringum 2550, gríðarleg hækkun undanfarna mánuði.

Eina sem ég hef í raun breytt er að ég hef unnið mikið með Birki Ísak Jóhannssyni sem aðstoðarmanni og vill henda í risastórt shout-out á hann, hann á mikið í þessum árangri! Heilt yfir hef ég svo bara verið aðeins meira professional í allri nálgun á skákina og vinnubrögðum.

Við óskum Vigni til hamingju. Myndirnar í fréttinni fengust frá Degi Ragnarssyni og þökkum við honum fyrir. Dagur sjálfur endaði mótið vel og vann fínan endtaflssigur gegn stigaháum FM, Aaravamudhan Balaji (2396).

Með sigrinum komst Dagur í peningaverðlaun, eins og Vignir og Aleksandr.

Íslensku verðlaunahafarnir sáttir með sitt!

Alexander Oliver Mai endaði sitt mót með jafntefli í lokaumferðinni. Aleksandr endaði með 5 vinninga og tapar 26 elóstigum. Vignir og Aleksandr hækka um 11 stig en Dagur um 16 stig.

- Auglýsing -