Skákþing Garðabæjar og lokamót Brim mótaraðarinnar hófst í Miðgarði í gær. Tefldar voru fjórar umferðir af atskák og náðu Jóhann Ragnarsson og Vignir Vatnar Stefánsson báðir 3,5 vinningum. Dagur Ragnarsson og Hilmir Freyr Heimisson eru með 3 vinninga í 3. – 4. sæti.

Í dag kl. 17 hefst 5. umferð en þá verður tefld kappskák. Þar ber hæst toppslagur Jóhanns og Vignis en Jóhann mun hafa hvítt. Dagur og Hilmir Freyr mætast á 2. borði.

Síðustu tvær umferðirnar verða svo klukkan 13 á laugardag og sunnudag.
- Auglýsing -















