Ritstjórn Skák.is óskar skák- og skákáhugamönnum gleðrilegra jóla! Það er nóg um vera um jólin bæði fyrir þá sem vilja tefla og ekki síður fyrir þá sem vilja fylgjast með. Þar ber HM í at- og hraðskák hæst. Tenglar hvernig best sé að fylgjast með þeirri verði aðgengilegir í tíma.
Ritstjórar vilja sérstaklega benda á Jólahraðskákmót TR sem fram fer 28. desember. Þar verður teflt til minningar um Ríkharðs Sveinarsson sem hefði fagnað 58 ára afmæli sínu hefði hann lifað. Skákáhugamenn eru hvattir til að fjölmenna.
Hvar get ég teflt um jólin?
- 26. desember – Fimmtudagsmót hjá TR kl. 19.30.
- 27. desember – Íslandsmót kvenna í hraðskák kl. 18:00
- 27. desember – Jólahraðskákmót SA kl. 18:00
- 28. desember – Árdegismót KR kl. 10:30
- 28. desember – Jólahraðskákmót TR – minningarmót um Rikka kl. 14:00
Hverju get ég fylgst með?
- 26.-31. desember – HM í at- og hraðskák – Magnús, Helgi Áss og Hikaru leika listir sínar.
- 27.-30. desember Bristol Open – Stefán Steingrímur og Keith Arkell meðal keppenda
- 27. des. – 3. jan. Festival Citta di Palmanova – Aleksandr Domalchuk-Jonasson meðal keppenda.
- 28. des. – 3. jan. Hasting Chess Congress – Vignir Vatnar, Benedikt Briem og Davíð Kolka leika listir sínar.
Njótum góðra skákjóla!
- Auglýsing -
















