HM í at- og hraðskák fer fram í New York dagana 26.-31. desember. Meðal keppenda er Íslandsmeistarinn í skák, Helgi Áss Grétarsson, og sterkasti skákmaður heims, Magnús Carlsen.

Í kvöld eru tefldar fimm atskákir og hefst fyrsta umferðin kl. 19:05. Mótinu er framhaldið á morgun og laugardag.

Langflestir sterkustu skákmenn heims taka þátt en heimsmeistarinn, Gukesh, situr þó hjá að sinni.

Helgi teflir við indverska stórmeistarann Raunak Sadwani (2591) í fyrstu umferð. Magnús mætir bandaríska stórmeistaranum Awonder Liang (2519).

Helgi Áss er nr. 150 í stigaröð 182 keppenda svo hér mikil áskorun á ferðinni fyrir okkar mann. HM í hraðskák hefst svo 30. desember. Þar teflir einnig okkar maður. Áfram Helgi!

Mótið á Chess-Results

HM í atskák kvennaflokki hefst sömuleiðis kl. 19:05. Þar tefla einnig flestar sterkustu skákkonur heims. Þar eru þó tefldar 11 umferðir og fjórar í kvöld.

Mótið á Chess-Results

Boðið er upp á ýmsar beinar útsendingar.

Á heimasíðu mótsins eru Maurice Ashley og Evgenij Miroshnichenko skákskýrendur.

Á Chess.com verða líka beinar útsendingar. Ingvar Þór Jóhannsson með ritstjóri á örugglega eftir að benda á fleiri valkosti í fréttaflutningi frá mótinu.

 

 

- Auglýsing -