tg

Skákþing Garðabæjar 2025 hefst í október

Tefldar verða 7 umferðir og verður mótið reiknað til alþjóðlegra stiga. Mótið er 45 ára afmælismót TG og er haldið með góðum stuðningi Lagastoðar.

Mótsstaður: Miðgarður íþróttahús Vetrarmýri 18. 3. hæð. Garðabæ. 

Umferðatafla:

Teflt verður á fimmtudögum í haust og verður byrjað eftir Haustmót TR og Íslandsmót skákfélaga. Tekið verður tillit til Evrópumóts liða.

Verðlaunaafhending og Hraðskákmót Garðabæjar fer fram eftir mót

Keppnisfyrirkomulag er svissneskt kerfi. Aðalskákstjóri er Páll Sigurðsson.
upplýsingar tg@tafl.is

Tímamörk fyrir kappskákirnar eru 60 mín og 30 sek (90 + 30 ef amk. einn þátttakandi yfir 2400 stig). 

Mótið er opið öllum og eru 2 hjásetur gegn hálfum vinning leyfðar til og með 5 umf. Tilkynna þarf hjásetu fyrir lok umferðarinnar á undan. Frestun skáka er ekki möguleg.
Pláss er fyrir um 50 keppendur.

Skráning er á skak.is (guli glugginn)

Smelltu hér til að sjá skráningu

Verðlaun auk verðlaunagripa: 

Heildarverðlaun eru meira en 400 þús, Efstu 3 verðlaunum er  skipt eftir Hort Kerfinu.

Verðlaun. 1. sæti 125 þús. 2 sæti 75 þús, 3. sæti 50 þús.

Aukaverðlaun (skiptast ekki og hver skákmaður fær bara ein verðlaun)

Skákmeistari Garðabæjar 50 þús.
Efsta skákkona 30 þús.
Efstur 67 ára og eldri 30. þús.
Efsti TG ingur 30. þús.
Efsti skákmaður í hverjum 8 manna flokki (utan efstu 5-8 manns) 30. þús.

Röð mótsstiga (tiebreaks):  1. Buchholz (-1) 2. Buchholz 3. Innbyrðis viðureign 4. fjöldi tefldra skáka 5. Sonnenborn-Berger.

Sæmdartitilinn Skákmeistari Garðabæjar geta aðeins fengið félagsmenn taflfélags í Garðabæ eða skákmaður með lögheimili í Garðabæ. Mótið er um leið Skákþing Taflfélags Garðabæjar. (keppt er um titil ef jafnt).

Þátttökugjöld:

Félagsmenn Fullorðnir 4000 kr. 17 ára og yngri ókeypis.

Aðrir. Fullorðnir 6000 kr. Unglingar 17 ára og yngri 3000 kr

IM/WIM og GM/WGM greiða ekki þáttökugjöld. Fyrrverandi skákmeistarar Garðabæjar fá boð um þátttöku auk annara boðsgesta.

Skákmeistari Garðabæjar 2024 er alþjóðlegi meistarinn Dagur Ragnarsson og Skákmeistari Taflfélags Garðabæjar árið 2024 er Lenka Ptacnikova stórmeistari kvenna.

- Auglýsing -