Lokaúrslit Síminn Invitational fóru fram í gærkvöld.. Stigahæsti skákmaður Íslands, stórmeistarinn, Vignir Vatnar Stefánsson, tefldi þá við Hannes Hlífar Stefánsson, fyrrum stigahæsta skákmann Íslands og þrettánfaldan Íslandsmeistara. Einvígi þeirra var í beinni lýsingu á Sjónvarpi Símans og rásum Rafíþróttasambandsins. Þeir félagar Björn Ívar Karlsson og Ingvar Þór Jóhannesson voru með skákskýringar og ofurstórmeistarainn Vasyl Ivanchuk kíkti í stutt spjall og fylgdist með einvíginu á Arena!

 Útsending var á streymisrásum Rafíþróttasambandsins og Sjónvarpi Símans eins og áður sagði en RÍSÍ hélt mótið í samstarfi við SÍ. Styrktaraðilar keppninnar voru SíminnLengjanCollab og Ljósleiðarinn.

Segja má að úrslit kvöldsins hafi verið mjög óvænt! Hannes Hlífar vann öruggan sigur en flestir höfðu fyrirfram gert ráð fyrir sigri Vignis.

Í fyrstu skákinni byrjaði Hannes vel með svörtu. Upp kom sikileyjarvörn og Vignir með fínt tafl framan af en tók nokkrar vitlausar ákvarðnir og endaði með drottningu sína á vergangi.

28…Rh5! 29.Dh3 Rgf4 30.Dh4 g5 og svo kemur hrókur á g-línuna. Hannes lék reyndar af sér riddara í kjölfarið en það skipti ekki máli!

Hannes fékk svo mikinn meðbyr með því að vinna skák númer tvö líka. Vignir var greinilega aðeins sleginn eftir tapið í fyrstu skákinni og lék af sér snemma tafls.

Hér var 8..exd5 nauðsynlegt en eftir 8…Rxd5?? 9.Re5 er svartur með hartnær tapað tafl!

Í kjölfarið komu tvær ótrúlegt skákir þar sem Vignir var peði yfir í endatafli í báðum og með stöður sem á að vera nánast bara hægt að tefla upp á tvö úrslit. Á einhvern ótrúlegan hátt náði Hannes að vinna þær báðar með seiglu í vörninni og blöndu af „primitífri redúseringu“ og afleikjum í lok endataflanna hjá Vigni.

Þriðja skákin:

Fjórða skákin:

Vignir tefldi sína bestu skák í fimmtu skákinni eftir hlé og virtist ákveðinn að koma til baka!

Hannes endaði þessar vonir meira og minna í sjöttu skákinni. Hannes tefldi mjög flotta skák, gaf Vigni stakt peð og vann svo peð seint í skákinni með flottri riddara-tilfærslu. Í endataflinu þjarmaði hann svo að svörtu stöðunni með stakri snilld.

Hér var forskotið orðið of mikið, Vignir þurfti fimm sigra í röð! Hannes var auk þess greinilega kominn í gírinn og gaf enga sénsa í sjöundu og síðustu skákinni.

Ótrúlegar lokatölur, 6-1 fyrir Hannes sem fáir áttu von á fyrirfram!

Hannes því meistari á Síminn Invitational árið 2025!

Leiðin í úrslit:

16-manna úrslit:

9. janúar

  • Helgi Ólafsson – Halldór B. Halldórsson 4-0
  • Jóhann Hjartarson – Ingvar Þór Jóhannesson 2-4

26. janúar

  • Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir – Bragi Þorfinnsson 0-4
  • Helgi Áss Grétarsson – Hannes Hlífar Stefánsson 0-4
  • Björn Þorfinnsson – Aleksandr Domalchuk-Jonasson 4-2

9. febrúar

  • Davíð Kjartansson – Símon Þórhallsson 3-4
  • Hilmir Freyr Heimisson – Dagur Ragnarsson 3,5-2,5
  • Guðmundur Kjartansson – Vignir Vatnar Stefánsson 1-4

Átta manna úrslit:

9. mars

  • Bragi Þorfinnsson – Hannes Hlífar Stefánsson 2,5-3,5
  • Helgi Ólafsson – Ingvar Þór Jóhannesson 3,5-0,5

16. mars

  • Aleksandr – Hilmir 3,5-1,5
  • Vignir – Símon 3,5-0,5

Undanúrslit:

23. mars

Helgi Ólafsson- Hannes Hlífar Stefánsson 5-6

30. mars

Vignir Vatnar Stefánsson – Aleksandr Domalchuk Jonasson 5,5-0,5

Úrslit

6. apríl

Vignir Vatnar Stefánsson – Hannes Hlífar Stefánsson 1-6

- Auglýsing -