Páskahraðskákmót TR fór fram í dag þegar vel á þriðja tug skákmanna ákvað að stytta sér stundir í páskafríinu og grípa í nokkrar bröndóttar. Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson reyndist í sérflokki og kom í mark með fullt hús, 11 vinninga af 11 mögulegum!
Þrátt fyrir glæsilegt form Vignis var sigurinn ekki öruggur allan tímann þar sem Daði Ómarsson reyndist einnig í banastuði en hann kom í mark í öðru sæti með 10 vinninga af 11 mögulegum, sérdeilis prýðilegur árangur!
Magnús Pálmi Örnólfsson tók þriðja sætið með 8,5 vinning en unlingaverðlaunin runnu til Josefs Omarssonar sem endaði með 6,5 vinning.
Nánari úrslit á chess-results hér að neðan!
- Auglýsing -














