Fyrsta umferð Norðurlandamóts stúlkna í skák fór fram fyrr í dag í Fredericia í Danmörku.
Íslenski hópurinn tók daginn snemma og fóru fram æfingar og undirbúningur við góðar aðstæður á hótelinu. Að æfingum loknum fór íslenski hópurinn saman í sund.

Dagskrá morgunsins hefur farið vel í okkar stelpur því uppskera dagsins var góð.
Íslensku keppendurnir náðu í sex vinninga af níu mögulegum.
A-flokkur:
Iðunn Helgadóttir – Livia Lindstad 1-0
Katrín María Jónsdóttir – Caroline Lindegaard Bruntse 0-1
B-flokkur:
Tuva Schmalholz – Guðrún Fanney Briem 0-1
C-flokkur:
Frida Bjerregaard Hagen – Miroslava Skibina 1-0
Eloisa Lallukka – Sigrún Tara Sigurðardóttir 1/2-1/2
Natasja Morkore – Emilía Embla B. Berglindardóttir 1/2-1/2
Melina Hjort Østerskov Jensen – Harpa Hrafney Karlsdóttir 0-1
Leen Chatleh – Halldóra Jónsdóttir 0-1
Katrín Ósk Tómasdóttir – Vilje Bjerregaard Hagen 1-0
2. umferð hefst kl. 07:00 að íslenskum tíma á morgun, laugardag.
—
Ísland á níu fulltrúa á mótinu sem tefla í þremur aldursskiptum flokkum:
A-flokkur
Iðunn Helgadóttir
Katrín María Jónsdóttir
B-flokkur
Guðrún Fanney Briem
C-flokkur
Emilía Embla B. Berglindardóttir
Halldóra Jónsdóttir
Harpa Hrafney Karlsdóttir
Katrín Ósk Tómasdóttir
Miroslava Skibina
Sigrún Tara Sigurðardóttir
Þjálfari hópsins er Björn Ívar Karlsson.
Dagskrá mótsins á íslenskum tíma:
Fös 25. apríl – 16:00 – 1. umferð
Lau 26. apríl – 07:00 – 2. umferð
Lau 26. apríl – 13:00 – 3. umferð
Sun 27. apríl – 07:00 – 4. umferð
Sun 27. apríl – 13:00 – 5. umferð
Pörun
Heimasíða mótsins
Keppendalisti
Bein útsending















