Barnaskákmót KR verður haldið laugardaginn 26. apríl 2025 og hefst það klukkan 13:00 í Samfélagshúsinu á Aflagranda 40.
Keppt verður í tveimur flokkum. Annars vegar 1.-3. bekkur og hins vegar 4.-8. bekkur. Tímamörkin verða 8 mínútur á hvorn keppenda að viðbættum 3 sekúndum fyrir hvern leik (8 +3). Tefldar verða 7 umferðir.
Þrír efstu keppendur í hvorum flokki fá verðlaun.
Mótin verða reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga.
Pizzur verða í boði fyrir skráða þátttakendur og aðstandendur frá 12:20.
- Auglýsing -

















