Jón Viktor Gunnarsson er efstur á minningarmótinu. Mynd: Sigurður Arnarson.

Fyrirlestraröð Taflfélags Garðabæjar heldur áfram n.k. mánudag kl. 19 í Miðgarði. Það vakti mikla lukku þegar Jón Viktor Gunnarsson hélt síðast fyrirlestur um Kaffihúsaleiðir í skák en í þetta skiptið mun hann fjalla um Króka í skák. Fyrir þá sem þekkja ekki það hugtak (eins og undirritaður) þá tók Jón eftirfarandi dæmi: T.d. hvernig það er hægt að nýta sér það þegar hvítur eða svartur leikur leik eins og h3 eða h6 snemma tafls með því að leika g4 eða g5 og krækja í h peðið til að opna línur að kóngi andstæðingsins. 

Í kjölfarið á fyrirlestrinum um kl. 20 verður tefld hraðskák 3+2.

Allir velkomnir – frítt inn!

- Auglýsing -