Morgunumferðir fara misvel í menn og lokaumferðin í Ljubljana fór fram snemma í morgun. Dagurinn var litaður af fjölbreyttum úrslitum: fín úrslit hjá Braga, harkalegt tap hjá Birni og góður lokasigur hjá Sigurbirni. Árangurinn endurspeglaði ólíkar leiðir leikmanna í gegnum krefjandi níu umferðir – með heilmiklum lærdómi í farteskinu.
Stórmeistarinn Bragi Þorfinnsson, endaði mótið á flottum sigri gegn pólskum skákmanni, Maciej Jendrowiak (2097). Bragi tefldi Philidor og var lengst af í erfiðri stöðubaráttu þar sem hvítur stóð aðeins betur. Bragi náði góðri virkni manna sinan í endataflinu og þegar hann náði samstæðum frípeðum á kóngsvæng þurfti ekki að spyrja að leikslokum. Bragi endaði í 27. sæti með 5,5 vinninga – og lokaniðurstaðan hefði getað verið enn betri ef ekki hefði verið fyrir snúinn miðkafla á mótinu
Björn Þorfinnsson átti aftur á móti erfiðan dag. Hann tefldi við CM Tomasz Musial (2199) ungan Pólverja sem var með allt á hreinu í byrjuninni. Björn vissi að 12…axb5 væri tafljöfnun en vildi meira líf og lék 12…Re7 sem svosem er teflanlegt. Mistökin voru hinsvegar 14…Nf5?? náði Pólverjinn fljótlega yfirhöndinni og verður að segjast að hann tefldi eins og Tal upp á sitt besta eftir það og kláraði skákina í aðeins 21 leik. Björn endaði mótið með 5,5 vinninga og í 32. sæti – í raun fín ágætis niðurstaða en síðasta umferðin skilur eftir sig ákveðið óbragð.
Sigurbjörn Hermannsson lauk móti sínu á góðan hátt með sigri á heimamanni, Gregor Markovcic (1639). Sigurbjörn vann fjórar skákir og endaði í 117. sæti með 4 vinninga og má nokkuð vel við una.
Uppgjör og lokaniðurstaða
Mótið vann GM Jan Subelj frá Slóveníu með 7 vinninga, sömu og fjórir aðrir skákmenn, en tiebreak-röðun réði úrslitum. Þar á eftir komu stórmeistarar Lagarde og Assylov, sá síðarnefndi aðeins 18 ára gamall.
Ísland á heildina litið:
-
GM Bragi Þorfinnsson – 5,5 vinningar, sæti 27
-
IM Björn Þorfinnsson – 5,5 vinningar, sæti 32
-
Sigurbjörn Hermannsson – 4 vinningar, sæti 117
Hraðskákmót– léttleiki í lokin
Eftir aðalkeppnina var haldið hraðskákmót með 3+2 tímamörkum. Þar voru 71 keppandi skráðir til leiks og úrslitin voru eftirfarandi fyrir Íslendingana:
-
GM Bragi Þorfinnsson – 6,5 vinningar, sæti 6
-
IM Björn Þorfinnsson – 5 vinningar, sæti 24
Stórmeistarinn Evgeny Postny vann hraðskákina. Bræðurnir gerðu jafntefli í 7. umferð en Björn tapaði tveim unnum stöðum í síðustu tveim en Bragi náði 1,5 vinning og góðri lokaniðurstöðu.















